NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 43
9. október 2025, kl. 12:00 til 13:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 915 liður 15
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 9. október.
Bæjarstjórn, fundur 404 liður 3
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 9. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026
Mál 2505170 Allur ferill málsins
Framlögð drög fjárhagsáætlunar 2026 ásamt starfsáætlun. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra að vinna áfram að starfs- og fjárhagsáætlun.
-
2. Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóli starfsemi leikskóla
Mál 2509151 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar áformum um aðstöðu fyrir starfsemi leikskóla á Breiðdalsvík til skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og ýtrekar mikilvægi þess að málið verði unnið hratt og örugglega.
-
3. Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita
Mál 2503223 Allur ferill málsins
Framlögð tilkynning frá Umhverfis- og orkustofnun um staðfestingu á styrkveitingu til jarðhitarannsókna en Fjarðabyggð fékk styrk að fjárhæð 40 milljónir kr. til jarðhitaleitar í Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
4. Framkvæmdaleyfi- 4.000m2 plan á núverandi gróðurlosunarsvæði á Norðfirði.
Mál 2509191 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi- 4.000m2 plan á núverandi gróðurlosunarsvæði á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Framkvæmdaleyfi endurnýjun Búðarvegi, 750 Fáskrúðsfirði
Mál 2510030 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi endurnýjun Búðarvegi, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Ályktun samþykkt á aðalfundi 2025
Mál 2509170 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd erindi frá stjórn Skógræktarfélags Íslands um ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins nýverið um framkvæmdaleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
7. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar hjá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu sviðsstjóra sviðsins um endurbætur á þaki Breiðdalsskóla en bæjarráð staðfesti tillögu hans um að þakið yrði lagaða eins og farið er yfir í minnisblaðinu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og tekur undir mikilvægi endurbótanna.