Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 42

1. október 2025, kl. 15:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 914 liður 11

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 1. október.

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 5

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 1. október utan liðar 9 sem vísað er til bæjarráðs er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2507014 Allur ferill málsins

    Lögð fram skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 og breytingu á Deiliskipulagi Hafnarsvæðis á Stöðvarfirði vegna lóðar fyrir þjónustu við fiskeldi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að kynna lýsinguna og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. 2. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun

    Mál 2410182 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem heimilar íbúðir og þjónustu á hluta af reit AT-301 á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar og vísar erindu í bæjarstjórn.

  3. 3. Byggingarleyfi breytingar Búðareyri 3, 730 Reyðarfirði

    Mál 2509197 Allur ferill málsins

    Byggingarheimild breytingar Búðareyri 3, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhuguð byggingaráform og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Byggingarleyfi Strandgata 46c

    Mál 2509193 Allur ferill málsins

    Byggingarheimild Strandgata 46c, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhuguð byggingaráform og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi-Reyðarfjörður Hæðargerði og Efstagerði styrking

    Mál 2509085 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi til að leggja nýjan lágspenntan stofnstreng. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026

    Mál 2509095 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að uppfæra gjaldskrá og leggja fyrir fund að nýju.

  7. 7. Vega- og brúarframkvæmdir í botni Reyðarfjarðar

    Mál 2509171 Allur ferill málsins

    Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn í máli hringvegur um Reyðarfjarðarbotn. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gera drög að umsögn og leggja fyrir fund að nýju.

  8. 8. Úrgangsráð Austurlands

    Mál 2509078 Allur ferill málsins

    Úrgangsráð Austurlands. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að fulltrúa og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að taka sæti í ráðinu.

  9. 9. Byggingar á þekktum flóðasvæðum

    Mál 2509116 Allur ferill málsins

    Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er varðar 16.gr. laga nr. 55/1992 laft fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  10. 10. Rútustæði við Múlann

    Mál 2509142 Allur ferill málsins

    Rútustæði við Múlann. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að útfæra nýja staðsetningu.

  11. 11. Legsteinn í Hólmakirkjugarði

    Mál 2509131 Allur ferill málsins

    Ósk um að færa legstein í Hólmakirkjugarði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  12. 12. Umhverfisviðurkenning 2025

    Mál 2509024 Allur ferill málsins

    Umhverfisviðurkenning 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu dómnefndar og felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að veita viðurkenninguna. Nefndin þakkar tilnefningarnar.

  13. 13. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2504199 Allur ferill málsins

    Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og vísar til áframhaldandi vinnu á næsta fundi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar.

  14. 14. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2025

    Mál 2502155 Allur ferill málsins

    Fundargerð 186. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þökkum kynninguna.