Bæjarráð, fundur 914
6. október 2025, kl. 08:30 til 10:55, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 403 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2505164 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds ársins hjá Fjarðabyggð og stofnunum.
-
2. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað með tillögu um viðgerð á þaki Grunnskóla á Breiðdalsvík.
Bæjarráð samþykkir tillögu um endurbætur á þaki skólans og felur skipulags- og framkvæmdasviði að hefja verkið sem fyrst.
-
3. Veikindalaun 2025
Mál 2509181 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar drög að innri samantekt yfir veikindalaun janúar - júní 2025.
-
4. Beiðni um fjárheimild til endurnýjunar á tölvum sem uppfylla ekki öryggisviðmið
Mál 2509201 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs beiðni um fjárheimildir vegna tölvukaupa á árinu 2025 vegna nauðsynlegrar uppfærslu á búnaði.
Bæjarráð samþykkir tillögu um endurnýjun búnaðarins og vísar kostnaði til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
-
5. Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029
Mál 2509226 Allur ferill málsins
Framlagt erindi kærunefndar útboðsmála vegna kæru UHA umhverfisþjónustu ehf. vegna útboðs Fjarðabyggðar á úrgangsþjónustu í Fjarðabyggð 2026 til 2029.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt lögmanni sveitarfélagsins að bregðast við kærunni og vinna málið áfram.
-
6. Hátæknibrennslustöð
Mál 2510016 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar gögn vegna hátæknibrennslustöðvar sem hugmyndir eru uppi um að nýta til förgunar á úrgangi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viljayfirlýsingu vegna væntanlegs undirbúningsfélags um stofnun hátæknibrennslustöðvar og leggja málið að nýju fyrir bæjarráð.
-
7. Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði
Mál 2510020 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Helgu Rún Jóhannsdóttur um gerð Padel vallar í eldri íþróttasalnum í íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til fjölskyldunefndar.
-
8. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
Mál 2510021 Allur ferill málsins
Framlögð auglýsing Ferðamálastofu þar sem auglýst er eftir styrkjum til uppbyggingar ferðastaða úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að umsóknum í sjóðinn vegna framkvæmda á árinu 2026 ásamt því að vísa málinu til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
-
9. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 985. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
10. Fjölskyldunefnd - 40
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. september.
- 10.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20262509150
- 10.2 Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóli starfsemi leikskóla2509151
- 10.3 Beiðni um fjárheimild til endurnýjunar á tölvum sem uppfylla ekki öryggisviðmið2509201
- 10.4 Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli, viðbrögð við manneklu á leikskóladeildinni á Stöðvarfirði2509204
- 10.5 Undirbúningur fyrir stofnun farsældarráðs Austurlands2509200
- 10.6 Öldungaráð - 182506007F
-
11. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 42
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 1. október.
- 11.1 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
- 11.2 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
- 11.3 Byggingarleyfi breytingar Búðareyri 3, 730 Reyðarfirði2509197
- 11.4 Byggingarleyfi Strandgata 46c2509193
- 11.5 Framkvæmdaleyfi-Reyðarfjörður Hæðargerði og Efstagerði styrking2509085
- 11.6 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20262509095
- 11.7 Vega- og brúarframkvæmdir í botni Reyðarfjarðar2509171
- 11.8 Úrgangsráð Austurlands2509078
- 11.9 Byggingar á þekktum flóðasvæðum2509116
- 11.10 Rútustæði við Múlann2509142
- 11.11 Legsteinn í Hólmakirkjugarði2509131
- 11.12 Umhverfisviðurkenning 20252509024
- 11.13 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20262504199
- 11.14 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20252502155
-
12. Öldungaráð - 18
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungráðs frá 12. júní.
-
13. Öldungaráð - 19
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungráðs frá 29. september.
- 13.1 Kynning á starfsemi og þjónustu fyrir öldungaráð2509188
- 13.2 Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð2303098
- 13.3 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
- 13.4 Reglur um stuðningsþjónustu 20252501083
- 13.5 Formannafundur LEB 20252509202