Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 44

16. október 2025, kl. 16:00 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 916 liður 16

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október.

  • Bæjarstjórn, fundur 404 liður 4

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Göngu- og hjólastígur frá Sómastöðum að afleggjara austan við álver

    Mál 2409096 Allur ferill málsins

    Göngu- og hjólastígur frá Sómastöðum að afleggjara austan við álver. Farið var yfir uppfærð gögn og öryggisrýni Vegagerðarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026

    Mál 2510021 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar auglýsing Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða þar sem auglýst er eftir styrkjum til uppbyggingar ferðastaða. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar er falið að vinna að umsóknum í sjóðinn vegna framkvæmda á árinu 2026.

  3. 3. Breyting á aðal- og deiliskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2509106 Allur ferill málsins

    Lögð fram í einu skjali lýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi, lýsing fyrir breytingu á deiliskipulagi og tillaga um breytingu á aðalskipulagi á vinnslustigi vegna íbúðarbyggðar við Búðareyri. Notkun reits VÞ-300 breytt í íbúðarbyggð og þrjú lítil fjölbýlishús fyrirhuguð á reitnum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lýsingu fyrir breytingu á deiliskipulagi og tillögu um breytingu á aðalskipulagi á vinnslustigi vegna íbúðarbyggðar við Búðareyri og vísar erindinu til bæjarstjórnar.

  4. 4. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar Hafnarbraut 21

    Mál 2510105 Allur ferill málsins

    Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar Hafnarbraut 21. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

  5. 5. Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2025

    Mál 2510075 Allur ferill málsins

    Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd mun skoða að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026

    Mál 2505170 Allur ferill málsins

    Framlögð drög fjárhagsáætlunar 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd fór yfir fjárhagsáætlun og samþykkir framlögð drög fyrir sitt leiti með fyrirvara um lítilsháttar breytingar eftir umræður á fundinum. Fjárhagsáætlun málaflokksins vísað til bæjarráðs.