NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 45
23. október 2025, kl. 16:00 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 917 liður 9
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 23. október tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 405 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 23. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Öldungaráð - ýmislegt
Mál 2505050 Allur ferill málsins
Öldungaráð leggur fram tillögu fyrir fjölskyldunefnd um að mála fjólubláa bekki í öllum bæjarkjörnum sveitarfélagsins. Tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.
Gestir. Fjölskyldunefnd fagnar erindinu og vísar því áfram til skipulags- og framkvæmdanefnda. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og vísar því til sviðsstjóra til nánari útfærslu.
-
2. Gjaldskrá vatnsveitu 2026
Mál 2509101 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
3. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026
Mál 2509095 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2026
Mál 2509038 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs og umsagnar HAUST.
-
5. Gjaldskrá hitaveitu 2026
Mál 2509037 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
6. Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2026
Mál 2509034 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
7. Gjaldskrá rafhleðslustöðva 2026
Mál 2509032 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
8. Gjaldskrá fráveitu 2026
Mál 2509030 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
9. Gjaldskrá fjarvarmaveita 2026
Mál 2508189 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
10. Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2026
Mál 2509046 Allur ferill málsins
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir árið 2026 til afgreiðslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
-
11. Öldungaráð - ýmislegt
Mál 2505050 Allur ferill málsins
Öldungaráð leggur fyrir fjölskyldunefnd að halda áfram úrbótum á húsnæðum félaga eldra fólks í Fjarðabyggð.Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því áfram til skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og felur sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
12. Stríðsárasafnið grenndarkynning
Mál 2510173 Allur ferill málsins
Grenndarkynningu lokið vegna umsóknar um byggingarleyfi við Stríðasárasafnið, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og vísar henni til endanlegrar staðfestingar í bæjarstjórn.
-
13. Byggingarleyfi Stríðsárasafnið, 730 Reyðarfirði
Mál 2510160 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi vegna endurbyggingar Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað og grenndarkynning hefur verið samþykkt af bæjarstjórn.