Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 46

19. nóvember 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 921 liður 11

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 19. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 4

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð_2025

    Mál 2511012 Allur ferill málsins

    Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar góða yfirferð á breytingum á samþykkt er varða meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð og samþykkir fyrir sitt leyti.

  2. 2. Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 2 Fáskrúðsfirði

    Mál 2511079 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 2 Fáskrúðsfirði vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á iðnaðarhúsi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að leggja erindið fyrir í bæjarstjórn að grenndarkynningu lokinni.

  3. 3. Byggingarleyfi Grímseyri 2

    Mál 2510188 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi Grímseyri 2. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir með fyrirvara um samþykkta óverulega breytingu á deiliskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. Hjólabraut á Norðfirði

    Mál 2509076 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf v. hjólabrautar á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að ræða við bréfritara og leggja málið fyrir nefnd að nýju.

  5. 5. Umsókn um stækkun lóðar að Egilsbraut 8

    Mál 2510215 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni um stækkun lóðar frá Húsfélaginu að Egilsbraut 8. Skipulags- og framkvæmdanefnd synjar beiðni um stækkun lóðar að Egilsbraut 8. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er umrætt svæði skilgreint sem almenn bílastæði fyrir miðbæinn á Norðfirði og eru ætluð til sameiginlegrar notkunar fyrir íbúa, gesti og starfssemi á svæðinu.

  6. 6. Framkvæmdaleyfi- Hjallaleira 21,730

    Mál 2511065 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi- Hjallaleira 21,730. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita - Jarðhiti jafnar leikinn -

    Mál 2503223 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar samningur við Loftslags- og orkusjóð vegna styrk til jarðhitaleitar til staðfestingar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  8. 8. Byggingarleyfi Strandgata 39, 735 Eskifirði

    Mál 2511050 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Strandgata 39, 735 Eskifirði. Breyting á núverandi húsnæði (skrifstofurými) í 7 íbúðir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði

    Mál 2411098 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórna. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.