Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 47

3. desember 2025, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 923 liður 12

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 5

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Byggingarleyfi Grímseyri 9 viðbygging, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2511216 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Grímseyri 9 viðbygging, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. Byggingarleyfi Miðstræti 26 breytingar inni, Norðfjörður 740

    Mál 2511195 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar inni við Miðstræti 26 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru

    Mál 2507013 Allur ferill málsins

    Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru. Umsagnir um lýsingu vegna skipulagsbreytinga. Skipulags- og framkvæmdanefnd tók fyrir umsagnir sem bárust þegar kynnt var lýsing fyrir breytingu á aðal- og deiliskipulagi vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1068). Af umsögnum er ljóst að kanna þarf betur áhrif stækkunar á lóðum til austurs. Samþykkt að halda áfram með aðrar breytingar á skipulagi svæðisins en láta stækkun lóða til austurs næst fjörunni bíða. Skipulagsfulltrúa falið að uppfæra tillöguna í samræmi við þessa niðurstöðu og leggja fyrir bæjarstjórn.

  4. 4. Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2509106 Allur ferill málsins

    Kynningu lýsingar og tillögu á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi vegna Búðareyrar 12 er lokið án þess að fram kæmu efnislegar athugasemdir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 31. grein skipulagslaga og vísar henni til bæjarstjórnar.

  5. 5. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2507014 Allur ferill málsins

    Teknar fyrir tillögur á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar á iðnaðarlóð við Sævarenda á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að tillagan sé kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.

  6. 6. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði

    Mál 2401199 Allur ferill málsins

    Auglýsing á kynningu á vinnslustigi lokið vegna aðalskipulagsbreytingar Tjaldsvæði og íbúðarbyggð á Eskifirði. Engar efnislegar breytingar hafa orðið á tillögunni frá þeirri útgáfu sem kynnt var á vinnslustigi.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir kynningu á vinnslustigi og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu í bæjarstjórn.

  7. 7. Umsókn um lóð Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2511197 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráð.

  8. 8. Umsókn um lóð Lyngbakki 2, 740 Norðfjörður

    Mál 2511198 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Lyngbakki 2, 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráð.

  9. 9. Framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðara á Reyðarfirði

    Mál 2511173 Allur ferill málsins

    Míla óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara í neðangreind staðföng á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  10. 10. Vega- og brúarframkvæmdir í botni Reyðarfjarðar

    Mál 2509171 Allur ferill málsins

    Vega- og brúarframkvæmdir í botni Reyðarfjarðar. Minnisblað stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar lagt fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að senda inn framlagaða umsögn.

  11. 11. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2026

    Mál 2509091 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni til bæjarstjórnar.

  12. 12. Staða á deiliskipulögðum íbúðarhúsalóðum í Fjarðabyggð 2025

    Mál 2511153 Allur ferill málsins

    Minnisblað Skipulagfulltrúa lagt fram til kynningar og farið yfir stöðu deiliskipulagðra íbúðarlóða í Fjarðabyggð og helstu skipulagsmál í hverjum byggðarkjarna. Kynnt verður yfirlit yfir framboð lóðar, stöðu innviða og þau skipulagsverkefni sem eru í vinnslu eða fram undan. Markmiðið er að gefa skýra mynd af stöðu byggingarlands og leggja grunn að ákvörðunum um næstu skref í skipulagsvinnu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  13. 13. Markvissari árangur á sviði umhverfis- og loftslagsmála

    Mál 2511156 Allur ferill málsins

    Lögð fram Aðgerð 7 - kortlagning - samantekt ásamt minnisblaði stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfismála. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að senda Innviðaráðuneytinu minnisblaðið.

  14. 14. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2511174 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám sem skilgreindur er sem varaafl. Settur upp fyrir vinnu í spennistöð 63 Stekkjarbrekku Reyðarfirði. Leysir af spennistöðina meðan unnið er í henni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina með þeim fyrirvara að gámurinn hindri ekki för gangandi vegfarenda og felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  15. 15. Fundargerðir Úrgangsráðs Austurlands

    Mál 2511218 Allur ferill málsins

    Fyrstu tvær fundargerðir lagðar fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  16. 16. Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2512025 Allur ferill málsins

    Teknar fyrir tillögur á vinnslustigi um breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar á iðnaðarlóð við Sævarenda á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að tillagan sé kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.

  17. 17. Gamli barnaskólinn á Eskifirði

    Mál 2212120 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur að frágangi lóðar við Gamla Barnaskólann á Eskifirði.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu um notkun steyptra kubba með munstri til að hlaða vegg við gamla barnaskólann. Nefndin felur sviðstjóra að vinna að málinu áfram í samráði við hagaðaila og leggja fyrir nefndina að nýju.