Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 923

8. desember 2025, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 407 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmdir við Búðarveg á Fáskrúðsfirði

    Mál 2512019 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf húseigenda við Búðarveg á Fáskrúðsfirði vegna framkvæmda við götuna.

    Bæjarráð tekur undir með bréfritara um framgang framkvæmda og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að fylgja framkvæmdum eftir en búið er að ræða við íbúa við götuna um aðstæður.

  2. 2. Gat í sjókvíum í Berufirði og Reyðarfirði

    Mál 2512020 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning Kaldvíkur vegna sjókvíaeldis þeirra í Reyðarfirði og Berufirði.

  3. 3. Fjármögnun stafrænt samstarfs 2026

    Mál 2512038 Allur ferill málsins

    Verkefnaáætlun og kostnaðarskipting stafræns samstarfs fyrir árið 2026 lagt fram til kynningar. Fjarðabyggð er þátttakandi í stafrænu samstarfi sveitarfélaganna.

  4. 4. Gjaldfrjáls afnot af Egilsbúð

    Mál 2512048 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Djúpsins leikfélags Verkmenntaskóla Austurlands og Leikfélags Norðfjarðar þar sem óskað er eftir styrk til afnota af Egilsbúðar vegna uppsetningu leiksýningar.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja leikfélögin um sem nemur afnotum að Egilsbúð vegna sýningarinnar. Tekið af liðnum óráðstafað 21-690 á árinu 2026.

  5. 5. Samningar um menningarstarf og tónlistaruppbyggingu

    Mál 2512009 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar tillögur að samningum um uppbyggingu menningarstarfs á Austurlandi 2026 til 2029 þar sem framlög taka hækkunum á hverju ári með aðkomu samningsaðila.

    Bæjarráð samþykkir tillögurnar og felur bæjarstjóra undirritun samninga fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  6. 6. Umsókn um lóð Lyngbakki 2

    Mál 2511198 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðin Lyngbakki 2, 740 Norðfjörður.

    Bæjarráð vísar lóðarúthlutun til frekari úrvinnslu skipulags- og framkvæmdasviðs og skipulags- og framkvæmdanefndar.

  7. 7. Umsókn um lóð Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2511197 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður.

    Bæjarráð samþykkir úthutun lóðarinnar.

  8. 8. Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs 2026

    Mál 2509091 Allur ferill málsins

    Framlögð endurskoðuð gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð fyrir árið 2026.

    Bæjarráð samþykkir uppfærða gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs á árinu 2026 en gjaldskrá gildir frá og með 1. janúar 2026.

  9. 9. Þjónusts SVF húsnæði og innviðir

    Mál 2511068 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar skýrsla Háskólans á Bifröst um þjónustu sveitarfélaga og innviði þeirra.

  10. 10. Fjölskyldunefnd - 47

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 1. desember lögð fram til umfjöllunar og afreiðslu.

    1. 10.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2025-20262511110
    2. 10.2 Til fjölskyldunefndar Afsláttur af tónskólagjöldum.2511224
    3. 10.3 Umsókn um styrk vegna Norræna menningarhátíð heyrnarlausra2511152
    4. 10.4 Firmakeppni í hraðskák 20252511190
  11. 11. Hafnarstjórn - 332

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 1. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir2511237
    2. 11.2 Úttekt á flotbryggjum - Fjarðabyggðarhafnir2511238
    3. 11.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    4. 11.4 Aðgangur tollyfirvalda að rafrænu eftirliti hafna2511164
    5. 11.5 Viðhald og framkvæmdir í Safnahúsi Neskaupstað 2025-262510089
    6. 11.6 Cruise Europe ráðstefnan 20262506128
    7. 11.7 Fréttabréf Cruise Iceland 20252511123
    8. 11.8 Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa2409069
    9. 11.9 Umsögn vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis2511080
  12. 12. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 47

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Byggingarleyfi Grímseyri 9 viðbygging, 750 Fáskrúðsfjörður2511216
    2. 12.2 Byggingarleyfi Miðstræti 26 breytingar inni, Norðfjörður 7402511195
    3. 12.3 Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru2507013
    4. 12.4 Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður2509106
    5. 12.5 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
    6. 12.6 Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði2401199
    7. 12.7 Umsókn um lóð Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður2511197
    8. 12.8 Umsókn um lóð Lyngbakki 2, 740 Norðfjörður2511198
    9. 12.9 Framkvæmdaleyfi vegna ljósleiðara á Reyðarfirði2511173
    10. 12.10 Vega- og brúarframkvæmdir í botni Reyðarfjarðar2509171
    11. 12.11 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20262509091
    12. 12.12 Staða á deiliskipulögðum íbúðarhúsalóðum í Fjarðabyggð 20252511153
    13. 12.13 Markvissari árangur á sviði umhverfis- og loftslagsmála2511156
    14. 12.14 Umsókn um stöðuleyfi2511174
    15. 12.15 Fundargerðir Úrgangsráðs Austurlands2511218
    16. 12.16 Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 22512025
    17. 12.17 Gamli barnaskólinn á Eskifirði2212120