Bæjarráð, fundur 924
18. desember 2025, kl. 09:15 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 408 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 2
Mál 2512125 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki 2 vegna fjárhagsáætlunar ársins 2025.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
2. Drangagili samningur um kaup stoðvirkja
Mál 2512124 Allur ferill málsins
Framlagður samningur um efniskaup vegna stoðvirkja í Drangagili.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
3. Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði
Mál 2510033 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til bæjarráðs minnisblaði um áhrif þess að nýta gamla íþróttasalinn á Reyðarfirði undir padelvöll. Fjölskyldunefnd líst vel á hugmynd um padelvöll en bendir á að hverju þarf að hyggja ef settur verður upp padelvöllur.
Bæjarráð samþykkir að heimilað verði að settur verði upp padel völlur í eldri íþróttasal íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi vegna afnota og rekstur vallarins í húsinu. Samningur lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.
-
4. Reglur um styrki til stjórnmálaflokka
Mál 2512122 Allur ferill málsins
Fjallað um reglur um framlög til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að lagðar verði fyrir bæjarstjórn endurskoðaðar reglur Fjarðabyggðar um styrki til stjórnmálasamtaka.
-
5. Samtarf skíðasvæðanna Oddskarðs og Stafdals 2024
Mál 2401096 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs samstarfssamkomulag milli Fjarðabyggðar og Múlaþings um rekstur aðgangsstýringar- og vefsölukerfis fyrir skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
6. Fasteignagjöld Víkin Fagra ehf, Frystihúsið Breiðdalsvík
Mál 2512065 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Víkinni fögru ehf. þar sem óskað er eftir afslætti á fasteignagjöldum. Bæjarráð samþykkir að veita styrk samkvæmt reglum Fjarðabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts í hlutfalli af starfsemi sem fellur þar undir. Jafnframt vísað til fjármálasviðs endurskoðun á reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
-
7. Viljayfirlýsing
Mál 2511118 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu viljayfirlýsingar og framgang verkefnisins.
-
8. Umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um lagareldi
Mál 2512119 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um lagareldi.
-
9. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 990. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
10. Stjórn menningarstofu - 28
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. desember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 10.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
- 10.2 Söfnun til varðveislu Gunnfaxa TF-ISB2511145
- 10.3 Umsókn um styrki til menningarmála2511149
- 10.4 Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands2511096
- 10.5 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 20252511146