Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 408

15. janúar 2026, kl. 16:00 til 16:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 924

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:11:12

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 18. desember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 225121250:11:40
    2. 1.2 Drangagili samningur um kaup stoðvirkja2512124
    3. 1.3 Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði25100330:12:08
    4. 1.4 Reglur um styrki til stjórnmálaflokka25121220:15:24
    5. 1.5 Samtarf skíðasvæðanna Oddskarðs og Stafdals 202424010960:19:08
    6. 1.6 Fasteignagjöld Víkin Fagra ehf, Frystihúsið Breiðdalsvík2512065
    7. 1.7 Viljayfirlýsing2511118
    8. 1.8 Umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um lagareldi2512119
    9. 1.9 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20252502038
    10. 1.10 Stjórn menningarstofu - 282512017F
  2. 2. Bæjarráð - 925

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:15:52

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. desember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Samningur um padelvöll á Reyðarfirði2512176
    2. 2.2 Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 20292509226
    3. 2.3 Kæra III vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 20292512168
    4. 2.4 Úthlutun byggðakvóta 2025 og 20262512159
    5. 2.5 Frumvarp til laga um breytingu á lögum 48 2011, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)2512173
    6. 2.6 Frumvarp til laga um lagareldi mál 25225121710:15:52
    7. 2.7 Frumvarp til laga um stjórn vatnamála2512172
    8. 2.8 Frumvarp til laga um breytinga á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum2512174
    9. 2.9 Fundargerðir Austurbrúar og SSA 20252502102
    10. 2.10 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20252502038
    11. 2.11 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 482512018F
  3. 3. Bæjarráð - 926

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:17:16

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Kæra 4 vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 20292512196
    2. 3.2 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar23022130:23:48
    3. 3.3 Erindi vegna padel vallar2512182
    4. 3.4 Samningur um padelvöll á Reyðarfirði25121760:27:32
    5. 3.5 Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 6025102280:17:16
    6. 3.6 Samstarfssamningur við Akademias 20262601007
    7. 3.7 Forkaupsréttur sveitarfélags á bátnum Steini HU-452601029
    8. 3.8 Úrgangsmál2505110
    9. 3.9 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 20252501180
    10. 3.10 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20252502101
  4. 4. Stjórn menningarstofu - 28

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:32:12

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. desember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
    2. 4.2 Söfnun til varðveislu Gunnfaxa TF-ISB2511145
    3. 4.3 Umsókn um styrki til menningarmála25111490:33:36
    4. 4.4 Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands2511096
    5. 4.5 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 20252511146
  5. 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 48

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. desember staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru2507013
    2. 5.2 Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 42512112
    3. 5.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Stekkjargata 32511074
    4. 5.4 Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggðm 20252511012
    5. 5.5 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
    6. 5.6 Útboð úrgangsþjónustu 2026 til 20292505110
    7. 5.7 Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar2512113
  6. 6. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 2

    Mál 2512125 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:35:28

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun.

    Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka 2 við fjárhagsáætlun ársins 2025.

    Viðaukinn felur í sér breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2025 sem hér segir.

    a) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 140,6 m.kr. í eignasjóði vegna klæðningar Fjarðabyggðarhallarinnar

    b) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 30 m.kr. í eignasjóði og auknar styrkveitingar að sömu fjárhæð vegna fyrsta áfanga endurgerðar Íslenska stríðsárasafnsins.

    c) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 22,4 m.kr. í fráveitu og aukna styrkveitingar að sömu fjárhæð vegna fráveitu á Eskifirði.

    d) Aukinn rekstrarkostnaður að fjárhæð 30 m.kr. í aðalsjóði og auknar styrkveitingar að fjárhæð 25. m.kr. vegna uppbyggingar áfangastaðar í Streytishvarfi.

    e) Hækkun fjárfesting að fjárhæð 33 m.kr. í eignasjóði vegna búsetukjarnans Skála á Reyðarfirði.

    f) Hækkun fjárfesting Hafnarsjóðs að fjárhæð 139 m.kr. vegna kaupa á Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.

    g) Aukinn rekstrarkostnaður að fjárhæð 13. m.kr. vegna niðurrifa á fasteignum að Mýrargötu 6 á Norðfirði og Öldugötu 6 á Reyðarfirði.

    Áhrif viðaukans eru að fjárfestingar í A-hluta hækka um 173,6 m.kr. og 139 m.kr. í B-hluta eða alls 312,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta lækkar um 18 m.kr. og verður jákvæð um 190,4 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðu lækkar samsvarandi og verður 628,4 m.kr. Sjóðsstaða samstæðunnar í árslok 2025 lækkar um 330,6 m.kr. og verður 159 m.kr.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka 2.

  7. 7. Reglur um styrki til stjórnmálaflokka

    Mál 2512122 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:37:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðum reglum um framlög til stjórnmálasamtaka.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfærðar reglur um framlög til stjórnmálaflokka.

  8. 8. Handbók Oddsskarðs

    Mál 2601075 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:39:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu handbókar.

    Framlögð til staðfestingar handbók um eftirlit og viðbragð við snjóflóðum í skíðasvæðinu í Oddskarði.

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum handbók skíðasvæðisins í Oddsskarði.

  9. 9. Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru

    Mál 2507013 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:42:00

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru. Tillaga verður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Við mótun tillögunnar hafa verið felld niður áform um stækkun til austurs, sem allmargar athugasemdir voru gerðar við þegar skipulagslýsing var kynnt.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulag vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru.

  10. 10. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:31:44

    Lögð fram tillaga um breytingu á skipan fulltrúa Framsóknarflokks í fjölskyldunefnd og hafnarstjórn.

    Lagt er til að Helga Rakel Arnardóttir taki sæti Tinnu Hrannar Smáradóttur í fjölskyldunefnd og Þuríður Lillý Sigurðardóttir taki sæti Helgu Rakelar sem varamanns í nefndinni. Þá er lagt til að Tinna Hrönn Smáradóttir taki sæti Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur í hafnarstjórn.

    Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.