NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 48
17. desember 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
- Ívar Dan Arnarson, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 925 liður 11
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 408 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru
Mál 2507013 Allur ferill málsins
Tekin fyrir tillaga á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru. Við mótun tillögunnar hafa verið felld niður áform um stækkun til austurs, sem allmargar athugasemdir voru gerðar við þegar skipulagslýsing var kynnt. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og henni vísað til bæjarstjórnar.
-
2. Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 4
Mál 2512112 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun lóðar Hraun 4, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti stækkun á lóð með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til hafnarstjórnar.
-
3. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Stekkjargata 3
Mál 2511074 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Stekkjargata 3, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um stækkun á lóð við Stekkjargötu 3, 740 Norðfirði. Umbeðin stækkun myndi rýra byggingarmagn við Stekkjargötu 5 en þar er gert ráð fyrir 2ja hæða íbúðarhúsi með allt að fjórum íbúðum skv. gildandi deiliskipulagi.
-
4. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggðm 2025
Mál 2511012 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar og afgreiðslu uppfærðri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
5. Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
Mál 2403230 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað vegna lýsingar í Fjarðabyggðarhöllinni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir kaup á lömpum fyrir Fjarðabyggðarhöllina og felur sviðstjóra að gera verðkönnun á uppsetningu á lömpum.
-
6. Útboð úrgangsþjónustu 2026 til 2029
Mál 2505110 Allur ferill málsins
Tunnur og dreifing. Minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags-, og umhverfisdeildar lagt fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
7. Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar
Mál 2512113 Allur ferill málsins
Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.