Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 925

29. desember 2025, kl. 11:00 til 12:10, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 408 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samningur um padelvöll á Reyðarfirði

    Mál 2512176 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að samningi um afnot af eldra íþróttahúsinu á Reyðarfirði undir padelvöll.

    Samningur verður tekinn fyrir að nýju í bæjarráði. Bæjarstjóra jafnframt falið að ræða við forsvarsmenn Ungmennafélagsins Vals.

  2. 2. Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029

    Mál 2509226 Allur ferill málsins

    Framlögð ákvörðun Kærunefndar útboðsmála frá 17. desember sl. vegna kæru UHA Umhverfisþjónustu ehf. Niðurstaða nefndarinnar er að stöðvunarskyldu útboðs er aflétt.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra frágang samnings við lægstbjóðanda sbr. bókun bæjarráðs frá 30. september sl. um málið.

  3. 3. Kæra III vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029

    Mál 2512168 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar ný kæra frá UHA Umhverfisþjónustu ehf. vegna ákvarðana Fjarðabyggðar í kjölfar útboðsins úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2026 til 2029.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við lögfræðing sveitarfélagsins að bregðast við kærunni.

  4. 4. Úthlutun byggðakvóta 2025 og 2026

    Mál 2512159 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf innviðaráðuneytisins vegna úthlutunar á byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 og setningu á sérstökum reglum um úthlutun kvótans.

    Bæjarráð samþykkir að ekki verði settar sérstakar reglur líkt og verið hefur síðustu ár.

  5. 5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum 48 2011, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

    Mál 2512173 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur) sem lögð hafa verði fram í samráðsgátt.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og bæjarritara að veita umsögn á grundvelli fyrri umsagna sveitarfélagsins.

  6. 6. Frumvarp til laga um lagareldi mál 252

    Mál 2512171 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að frumvarpi til laga um lagareldi sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt.

  7. 7. Frumvarp til laga um stjórn vatnamála

    Mál 2512172 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að frumvarpi til laga um stjórn vatnamála sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt.

  8. 8. Frumvarp til laga um breytinga á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

    Mál 2512174 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að frumvarpi um breytingu á lögum umvarnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda) sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og bæjarritara að veita umsögn á grundvelli fyrri umsagna sveitarfélagsins.

  9. 9. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025

    Mál 2502102 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Austurbrúar nr 167. og fundargerð stjórnarfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi nr. 18.

  10. 10. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12. desember 2025.

  11. 11. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 48

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru2507013
    2. 11.2 Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 42512112
    3. 11.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Stekkjargata 32511074
    4. 11.4 Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggðm 20252511012
    5. 11.5 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
    6. 11.6 Útboð úrgangsþjónustu 2026 til 20292505110
    7. 11.7 Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar2512113