Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 926

8. janúar 2026, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 408 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Kæra 4 vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029

    Mál 2512196 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá UHA umhverfisþjónustunni ehf. vegna útboðs á úrgangsþjónustu 2026 til 2029. Í bréfi frá Kærunefnd útboðsmála 6. janúar sl. kemur fram að nefndin líti svo á að ekki sé um sjálfstæða kæru að ræða heldur viðbótarathugasemdir vegna fyrri kæru.

    Framlagt og kynnt.

  2. 2. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Lagðir fram endurskoðaðir uppdrættir af skógræktarsvæði næst byggðinni á Reyðarfirði þar sem búið er að færa mörk svæðisins upp frá væntanlegum stækkunarsvæðum byggðar og taka tillit til efnistökusvæðis ásamt uppfærðum samningsdrögum.

    Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  3. 3. Erindi vegna padel vallar

    Mál 2512182 Allur ferill málsins

    Framlögð erindi frá Ungmennafélaginu Val vegna padel vallar í eldra íþróttahúsi á Reyðarfirði.

    Bæjarráð þakkar gagnlegar ábendingar frá Ungmennafélaginu Val. Ábendingum vísað til skipulags- og framkvæmdasviðs og fjölskyldusviðs til skoðunar.

  4. 4. Samningur um padelvöll á Reyðarfirði

    Mál 2512176 Allur ferill málsins

    Framlögð að nýju drög að samningi um afnot af íþróttahúsinu á Reyðarfirði undir padelvöll.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  5. 5. Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60

    Mál 2510228 Allur ferill málsins

    Fjallað um niðurstöður könnunar á húsnæðisþörf 60 áara og eldri íbúa í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að niðurstöður könnunar nýttar við endurskoðun húsnæðisáætlunar sveitarfélagsins og í framhaldinu verði þær kynntar fyrir verktökum í Fjarðabyggð.

    Vísað til umfjöllunar fjölskyldunefndar og öldungaráðs.

  6. 6. Samstarfssamningur við Akademias 2026

    Mál 2601007 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að áskriftarsamningi við Akademias, varðandi rafræn námskeið fyrir starfsmenn sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Forkaupsréttur sveitarfélags á bátnum Steini HU-45

    Mál 2601029 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Gullrúnu ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að bátnum Steini HU-45.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Steini HU-45.

  8. 8. Úrgangsmál

    Mál 2505110 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu úrgangsmála í upphafi nýs samningstímabils.

  9. 9. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025

    Mál 2501180 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 87.

  10. 10. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025

    Mál 2502101 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sjávárútvegssveitarfélaga nr. 93