NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 49
14. janúar 2026, kl. 16:15 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 927 liður 9
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 14. janúar.
Bæjarstjórn, fundur 409 liður 4
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 49 og 50 voru lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 49 og 50 eru staðfestar með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12
Mál 2601071 Allur ferill málsins
Fjarðabyggð auglýsir tillögu um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar á Reyðarfirði sem felur það í sér að lóðin Búðareyri 12 verður notuð fyrir íbúðarbyggð í stað verslunar og þjónustu. Byggingarmagn er jafnframt minnkað verulega. Fyrirhugað er að koma fyrir þremur fjölbýlishúsum á lóðinni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar á Reyðarfirði. Deiliskipulagsbreytingin er í samræmi við aðalskipulagsbreytingu sem þegar er í ferli. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
-
2. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Mál 2507014 Allur ferill málsins
Tillaga að auglýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi stækkunar iðnaðarsvæðis við Sævarenda 2, Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að auglýsa aðalskipulagsbreytinguna og vísar erindinu í bæjarstjórn.
-
3. Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2
Mál 2512025 Allur ferill málsins
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði. Um er að ræða skilgreiningu iðnaðarlóðar við Sævarenda með auknu rými fyrir hafntengda starfsemi. Jafnframt myndast ný tenging lóðarinnar við hafnarsvæðið. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að breytingu. Um er að ræða skilgreiningu iðnaðarlóðar við Sævarenda með auknu rými fyrir hafntengda starfsemi. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
-
4. Byggingarleyfi Búðarmelur 31
Mál 2601032 Allur ferill málsins
Umsókn um Byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Búðarmel 31, 730, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um byggingarleyfi á þeim grundvelli að áformin eru ekki í samræmi við lóðarumsókn er varðar stærð húss. Jafnframt er gert ráð fyrir einni og hálfri hæð á viðkomandi lóð.
-
5. Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun
Mál 2601008 Allur ferill málsins
Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til eins árs. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og felur stjórnanda byggingar- skipulags- og umhverfisdeildar að skoða málið í samræmi við umræður á fundinum.
-
6. Skammtíma lóðarleigusamningur um Hjallaleiru 8 og 10
Mál 2601037 Allur ferill málsins
Framlögð drög að lóðaleigusamningi við UHA umhverfisþjónustu vegna tímabundinnar geymslu á gámum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarleigusamninginn.
-
7. Framkvæmdaleyfi ljósleiðari Eskifirði
Mál 2512191 Allur ferill málsins
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
8. Fundaáætlun 2026
Mál 2601078 Allur ferill málsins
Fundaáætlun 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fundaáætlun.