Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 50

28. janúar 2026, kl. 16:30 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 929 liður 10

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 28. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 409 liður 5

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 49 og 50 voru lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 49 og 50 eru staðfestar með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Óveruleg deiliskipulagsbreyting Brekkugerði 1

    Mál 2601106 Allur ferill málsins

    Óveruleg deiliskipulagsbreyting Brekkugerði 1. Breytingin tekur til lóðar við Brekkugerði 1, lóðin er stækkuð til austurs og fer úr því að vera 859,1m² í 1.154 m². Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.

  2. 2. Kvíabrekka 2 óveruleg breyting á deiliskipulagi

    Mál 2512133 Allur ferill málsins

    Kvíabrekka 2 óveruleg breyting á deiliskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.

  3. 3. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil Norðfirði

    Mál 2601090 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Ofanflóðvarna á Norðfirði vegna fjölskyldusvæðis. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða breytingu og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir Víðimýri 17, Hrafnsmýri 1-3-5-6, Starmýri 15-17-19-21-23.

  4. 4. Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2601112 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni með fyrirvara um að nýtt deiliskipulag verði samþykkt og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráð.

  5. 5. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar

    Mál 2601172 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.

  6. 6. Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01

    Mál 2512023 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  7. 7. Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02

    Mál 2512022 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  8. 8. Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl03

    Mál 2512021 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl03. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  9. 9. 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2107078 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun til vesturs um 3 metra. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda.

  10. 10. Refa- minkaveiði 2026

    Mál 2601003 Allur ferill málsins

    Umræða um fyrirkomulag n.k. samningstímabils og framlögð fundargerð með refaskyttum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.

  11. 11. Umsókn um lóð undir Naddoð

    Mál 2601177 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð undir Naddoð. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með umsækjendum.

  12. 12. Styrkir til fráveituframkvæmda 2026

    Mál 2601114 Allur ferill málsins

    Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að sækja um í samræmi við umræður á fundinum.

  13. 13. Greinargerð um framkvæmdir ársins

    Mál 2505164 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri skipulags- og framkvæmdasvið gerir grein fyrir niðurstöðu framkvæmda ársins 2025 og áætlunum næsta árs. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.

  14. 14. Byggingarleyfi Búðarmelur 31

    Mál 2601032 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi við Búðarmel 31, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um byggingarleyfi í ljósi þess að viðkomandi framkvæmd fellur ekki að deiliskipulagi.

  15. 15. Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun

    Mál 2601008 Allur ferill málsins

    Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til tveggja ára. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum skipulags- og framkvæmdasviðs að kanna málið frekar.

  16. 16. Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði

    Mál 2601222 Allur ferill málsins

    Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna stækkunina við Strandgötu 4 og 8 og Ásgarð 3 og 5.