NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 51
11. febrúar 2026, kl. 16:00 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 931 liður 13
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 410 liður 3
Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Jóna Árný Þórðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Mál 2507014 Allur ferill málsins
Um umsögn Vegagerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í ábendingu Vegagerðarinnar og vísar erindinu til umsagnar í hafnarstjórn.
-
2. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Mál 2302213 Allur ferill málsins
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
3. Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði
Mál 2601220 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun á lóð. Stækkunin er ekki talin hafa grenndaráhrif. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
-
4. Framkvæmdaleyfi vegna strenglaganar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
Mál 2410177 Allur ferill málsins
Endurnýju á framkvæmdaleyfi. Ekki var farið í verkið á síðasta ári vegna ófyrirséðs kostnaðar í öðrum verkum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir endurnýjun á framkvæmdaleyfi.
-
5. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Mál 2601258 Allur ferill málsins
Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
6. Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Mál 2601178 Allur ferill málsins
Tillaga að umsóknum í fiskeldissjóð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögurnar og felur sviðstjóra að senda inn umsókn.
-
7. Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun
Mál 2601008 Allur ferill málsins
Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til tveggja ára. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytta notkun að Strandgötu 39, 735 Eskifirði til 1. júlí 2027 og felur byggingarfulltrúa að fara í úttekt á mannvirkinu.
-
8. Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði
Mál 2309068 Allur ferill málsins
Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við Vegagerðina.