Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 52

25. febrúar 2026, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 933 liður 7

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 25. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 411 liður 3

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 25. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Breyting á aðalskipulagi reitur AT-301

    Mál 2510090 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 sem veitir takmarkaða heimild til búsetu á reit AT-301 á Reyðarfirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Þrjár umsagnir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar málinu aftur til skipulagsfulltrúa og felur honum að bregðast við umsögnum er varða skilmála samkvæmt umræðum á fundinum og leggja fyrir.

  2. 2. Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2509106 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 vegna íbúðarbyggðar við Búðareyri 12, Reyðarfirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Umsagnir bárust frá HAUST og Vegagerðinni sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir. Skipulags og framkvæmdanefnd telur ekki vera tilefni til breytinga á tillögunni og henni vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  3. 3. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði

    Mál 2401199 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggaðar 2020-2040 vegna tjaldsvæðis og íbúðarbyggðar á Eskifirði. Tillagan var auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gefinn frestur til 18. febrúar til að skila inn athugasemdum. Nokkrar umsagnir bárust sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir. Skipulags og framkvæmdarnefnd telur ekki vera tilefni til breytinga á tillögunni og er henni vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Byggingarleyfi Hamarsgata 15

    Mál 2602185 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi við Hamarsgötu 15, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um byggingu á tveggja hæða einbýlishúsi með bílskúr. Á lóðinni er þegar fyrir tveggja hæða einbýli og telur nefndin að framkvæmdin fari yfir hóflegt nýtingarhlutfall.

  5. 5. Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar

    Mál 2601172 Allur ferill málsins

    Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3, Sólbakki 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu í bæjarstjórn.

  6. 6. Hreindýraarður - Stöðvarfirði

    Mál 2601254 Allur ferill málsins

    Hreindýraarður - Stöðvarfirði. Skipulags-og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vera í sambandi við bréfritara.

  7. 7. Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði

    Mál 2602154 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð við Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu til bæjarráðs.

  8. 8. Framkvæmdaleyfi mön við tjaldsvæði Reyðarfirði

    Mál 2602121 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gerð skjólgarða á tjaldsvæðinu á Reyðarfirði til að brjóta upp vind og brjóta upp opin svæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Nefndin ítrekar að mikilvægt sé að umsóknaraðili sjái til þess að frágangur verði kláraður fyrir sumarið. Frágangur skal vera í samráði við stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar.

  9. 9. Framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi

    Mál 2601202 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða framkvæmd og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.

  10. 10. 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2107078 Allur ferill málsins

    740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd fer fram á að sett verði kvöð um lagnaleið á stækkkunina og vísar erindinu til skipulagsfulltrúa og leggja fyrir nefnd að nýju.

  11. 11. Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga

    Mál 2602047 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að koma með tillögur fyrir næsta fund.

  12. 12. Merking á íþróttahús

    Mál 2602142 Allur ferill málsins

    Ósk um að setja merkingu á íþróttahús. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið. Húsnæði sveitarfélagsins sem hýsir stofnanir og er í eigu þess eru merktar með skjaldamerki Fjarðabyggðar og heiti stofnunar. Viðmið sveitarfélagsins er að eignir þess séu ekki merktar öðrum aðilum eða félögum og getur nefndin því ekki orðið við beiðninni.

  13. 13. Lóð frystihús Breiðdalsvík brunnar og frágangur

    Mál 2602124 Allur ferill málsins

    Lóð frystihús Breiðdalsvík brunnar og frágangur. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að ráðst í úrbætur á málinu.

  14. 14. Hvíldarbekk með áletruðum skildi

    Mál 2602101 Allur ferill málsins

    Hvíldarbekk með áletruðum skildi. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  15. 15. Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður

    Mál 2602176 Allur ferill málsins

    Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  16. 16. Snómokstur Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2602197 Allur ferill málsins

    Kynning á fyrirkomulagi snjómoksturs í Fjarðabyggð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  17. 17. Kynding sundlaugar í Neskaupstað

    Mál 2602196 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Parut ehf varðandi uppsetningu á varmadælum fyrir sundlaugina í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  18. 18. Fjárfestingar framkvæmdasviðs 2026

    Mál 2602194 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að verkum í verðkannanir og útboð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu.

  19. 19. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Fundargerð 189. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur undir bókanir um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og frumvarp til laga til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.