Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 53

27. febrúar 2026, kl. 10:00 til 11:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 933 liður 8

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. febrúar tekin til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 411 liður 4

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Viðhald og nýframkvæmdir gatna 2026

    Mál 2601239 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur að malbikun og viðhaldi gatna. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagt minnisblað.

  2. 2. Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6

    Mál 2602237 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna breytinguna við Hafnarbraut 4, 8 og 13, Hólsgötu 3 og 5 og leggja fyrir nefnd að nýju.

  3. 3. Kynding sundlaugar í Neskaupstað

    Mál 2602196 Allur ferill málsins

    Kynding sundlaugar í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

  4. 4. Fjárfestingar framkvæmdasviðs 2026

    Mál 2602194 Allur ferill málsins

    Fjárfestingar framkvæmdasviðs 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögur sviðsstjóra og felur honum að vinna málið áfram og og setja verkefni í verðkönnun og útboð eftir atvikum.

  5. 5. Hvíldarbekk með áletruðum skildi.

    Mál 2602101 Allur ferill málsins

    Hvíldarbekk með áletruðum skildi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðssins að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

  6. 6. Snjómokstur Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2602197 Allur ferill málsins

    Snjómokstur Fjarðabyggðar 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  7. 7. Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður

    Mál 2602176 Allur ferill málsins

    Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fyrir fund að nýju.