NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 54
9. mars 2026, kl. 16:00 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 935 liður 15
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 412 liður 6
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Engin tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 3-5 Fáskrúðsfirði
Mál 2602230 Allur ferill málsins
Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 3-5 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
-
2. Breyting á aðalskipulagi reitur AT-301
Mál 2510090 Allur ferill málsins
Tekin fyrir tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna íbúðarbyggðar á athafnasvæði AT-301 á Reyðarfirði. Tillagan var auglýst og hefur verið breytt í samræmi við bókun á 52. fundi skipulags- og framkvæmdanefndar vegna innsendra athugasemda. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar tillögunni með áorðnum breytingum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
3. Byggingarleyfi Hraun 2, breytingar inni
Mál 2603025 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum inni við Hraun 2 (slökkvistöð). Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu og starfsmönnum sviðsins falið að vinna málið áfram.
-
4. Byggingarleyfi Hafnargata 15, 750 Fáskrúðsfjörður
Mál 2603082 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi Hafnargata 15, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði
Mál 2602154 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingu á lóð og vísar erindinu í bæjarráð.
-
6. Grenndarkynning Strandgata 28
Mál 2603086 Allur ferill málsins
Grenndarkynning Strandgata 28, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir íbúum Strandgötu 26 og 30.
-
7. Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði
Mál 2601222 Allur ferill málsins
Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði. Athugasemdir grenndarkynningar kynntar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfullrúa að uppfæra lóðamörk miðað við umræður á fundinum og leggja fyrir fund að nýju.
-
8. 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
Mál 2107078 Allur ferill málsins
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkun og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráð.
-
9. Framkvæmdaleyfi efnistaka Hrafnagil
Mál 2602090 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi efnistaka Hrafnagil. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
-
10. Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Bleiksárfoss
Mál 2602190 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Bleiksárfoss. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
-
11. Nýting æðarvarps í landi Hólma
Mál 2602254 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðni um framlengingu afnota af æðarvarpi. Stefna sveitarfélagsins er að bjóða út hlunnindi sem þessi til áhugasamra aðila til nýtingu þeirra að loknum samningstíma.
-
12. Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld.
Mál 2601100 Allur ferill málsins
Sviðstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um aðstöðu og áhöld tengd íþróttahúsi Reyðafjarðar sem þarf að laga til að húsið nýtist sem best. Málinu vísað áfram til skipulags og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir fund að nýju.