Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 935

16. mars 2026, kl. 08:30 til 11:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 412 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 16. mars utan dagskrárliðar 9 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025

    Mál 2603147 Allur ferill málsins

    Helstu tölur og niðurstöður í ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana í frumdrögum lagður fram til kynningar.

  2. 2. Kaupsamningur og afsal um Bakkabakka 15

    Mál 2603148 Allur ferill málsins

    Kynntar forsendur fyrir sölu Bakkabakka 15 til Leigufélagsins Bríetar ehf.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að frágangi kaupsamnings á gefnum forsendum sem lagður verður fyrir bæjarráð til staðfestingar.

  3. 3. Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 2504103 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög samninga um kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar.

    Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  4. 4. Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði

    Mál 2602154 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Strandgötu 28, 740 Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  5. 5. 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2107078 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðarinnar Blómsturvellir 33 á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.

  6. 6. Fundur bæjarráðs með Vegagerðinni

    Mál 2401188 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni framkvæmda og viðhalds Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð.

  7. 7. Aðalfundur SSA og ársfundur Austurbrúar 2026

    Mál 2603145 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar kjörbréf fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður 20. mars nk.

    Bæjarráð felur bæjarritara að fara með umboð á fundi Austurbrúar.

  8. 8. Til umsagnar 499. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

    Mál 2603079 Allur ferill málsins

    Framlagt frá nefndasviði Alþingis til umsagnar 499. mál frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.

    Bæjarrá felur bæjarstjóra að skila umsögn vegna frumvarpsins.

  9. 9. Beiðni um endurgjaldslaus afnot árshátíð

    Mál 2603172 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af Egilsbúð vegna árshátíðar nemenda skólans.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja nemendafélag skólans sem nemur afnotum þess af Egilsbúð samanber beiðni þar af lútandi. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.

    Jafnframt samþykkir bæjarráð að styrkja Verkmenntaskólann um afnota af Fjarðabyggðahöllinni vegna íþróttadags skólans. Mætt af liðnum óráðstafað 21690.

  10. 10. Til umsagnar 505. mál frá nefnda- og greiningarsviði

    Mál 2603078 Allur ferill málsins

    Framlagt frá nefndasviði Alþingis til umsagnar 505. mál, frumvarp til sveitarstjórnarlaga.

    Bæjarráð tekur undir megin sjónarmið frumvarpsins og felur bæjarstjóra að veita umsögn.

  11. 11. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.

  12. 12. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins

    Pálina Margeirsdóttir hefur óskað eftir lausn frá nefndarstörfum vegna búferlaflutninga. Tinna Hrönn Smáradóttir tekur sæti varamanns í öldungaráði í stað Pálínu og Birgir Jónsson tekur sæti Pálinu sem varamanns í hafnarstjórn.

  13. 13. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

    Mál 2601212 Allur ferill málsins

    Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fjölskyldunefnd - 53

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Skóladagatöl 2026-20272601102
    2. 14.2 Forvarnarfræðsla um ávana- og vímuefnaneyslu ungmenna2603071
    3. 14.3 Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 20262601236
    4. 14.4 Beiðni um kaup á stólum2603035
    5. 14.5 Einfaldað regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    6. 14.6 Ungmennaráð - 222602007F
    7. 14.7 Öldungaráð - 242602008F
  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 54

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis norðan þjóðvegar, Grímseyri 3-5 Fáskrúðsfirði2602230
    2. 15.2 Breyting á aðalskipulagi reitur AT-3012510090
    3. 15.3 Byggingarleyfi Hraun 2, breytingar inni2603025
    4. 15.4 Byggingarleyfi Hafnargata 15, 750 Fáskrúðsfjörður2603082
    5. 15.5 Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði2602154
    6. 15.6 Grenndarkynning Strandgata 282603086
    7. 15.7 Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði2601222
    8. 15.8 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar2107078
    9. 15.9 Framkvæmdaleyfi efnistaka Hrafnagil2602090
    10. 15.10 Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Bleiksárfoss2602190
    11. 15.11 Nýting æðarvarps í landi Hólma2602254
    12. 15.12 Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld.2601100
  16. 16. Stjórn menningarstofu - 33

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 16.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
    2. 16.2 Afgreiðsla menningarstyrkja 20262603052
    3. 16.3 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
    4. 16.4 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    5. 16.5 Verkefni menningarstofu 20262602053
  17. 17. Ungmennaráð - 22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð ungmennaráðs frá 11. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 17.1 Ungmennaráð - Íþróttir í Fjarðabyggð
  18. 18. Öldungaráð - 24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 16. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Heimsókn öldungaráðs í dagvist eldra fólks á Breiðdalsvík2602110