Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 53

9. mars 2026, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 935 liður 14

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 412 liður 9

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skóladagatöl 2026-2027

    Mál 2601102 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirliggjandi minnisblað um skóladagatöl 2026-2027, afgreiðslu frestað og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að afla frekari upplýsinga og skýra nokkur álitamál fyrir næsta fund nefndarinnar.

  2. 2. Forvarnarfræðsla um ávana- og vímuefnaneyslu ungmenna

    Mál 2603071 Allur ferill málsins

    Árni Einarsson ráðgjafi hjá FRÆ hélt kynningu fyrir fjölskyldunefnd um ávana- og vímuefnaneyslu ungmenna sem hann fer með í Verkmenntaskóla Austurlands, 10. bekki allra grunnskóla í Fjarðabyggð, til starfsfólks skólanna og foreldra.

  3. 3. Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 2026

    Mál 2601236 Allur ferill málsins

    Vísað frá farsældarráði 2. fundargerð farsældarráðs til kynningar í fjölskyldunefnd.

  4. 4. Beiðni um kaup á stólum

    Mál 2603035 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til vinnslu í komandi fjárhagsáætlunargerð.

  5. 5. Einfaldað regluverk um verkefni sveitarfélaga

    Mál 2602047 Allur ferill málsins

    Farið yfir tækifæri til einföldunar í regluverki gagnvart verkefnum sveitarfélaga. Fjölskyldusviði falið að senda inn tillögur og ábendingar í vefkönnun sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda.

  6. 6. Ungmennaráð - 22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 22. fundar ungmennaráðs kynnt fyrir fjölskyldunefnd.

    1. 6.1 Ungmennaráð - Íþróttir í Fjarðabyggð
  7. 7. Öldungaráð - 24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 24. fundar öldungaráðs kynnt fyrir fjölskyldunefnd.

    1. 7.1 Heimsókn öldungaráðs í dagvist eldra fólks á Breiðdalsvík2602110