Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 54

16. mars 2026, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, embættismaður
  • Guðmunda Erlendsdóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 936 liður 9

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 412 liður 10

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skóladagatöl 2026-2027

    Mál 2601102 Allur ferill málsins

    Lagt er fram uppfært minnisblað með tillögu að skóladagatölum fyrir skólaárið 2026-2027, ásamt skóladagatölum einstakra skóla. Skóladagtöl staðfest eins og þau liggja fyrir og fræðslustjóra falið að vinna tillögu að endurskoðun á verklagsreglum um staðfestingu skóladagatala.

  2. 2. Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027

    Mál 2603168 Allur ferill málsins

    Málið er kynnt og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna áfram að málinu

  3. 3. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027

    Mál 2602108 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027 og fól sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna áfram að starfsáætlun miðað við umræður fundarins.

  4. 4. Starfamessa 2026

    Mál 2512042 Allur ferill málsins

    Starfamessa kynnt og minnisblaði vísað til umsagnar í ungmennaráði og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna áfram að undirbúningi.

  5. 5. Samningur við Brettafélag Fjarðabyggðar

    Mál 2602092 Allur ferill málsins

    Samningur við Brettafélag Fjarðabyggðar vegna leigu á búnaði í Oddsskarði vegna brettaiðkunar lagður fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs til afgreiðslu.