Fjölskyldunefnd, fundur 55
23. mars 2026, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 938 liður 15
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 413 liður 4
Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Mál 2603168 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við Sparisjóð Austurlands um leigu á hluta af efri hæðinni að Egilsbraut 25, undir starfsemi Vinasels, skólaárið 2026-2027 og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
-
2. Skólavogin foreldrakönnun leik- og grunnskóla 2025-2026
Mál 2603201 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti niðurstöður úr Foreldrakönnun grunnskóla og leikskóla í Fjarðabyggð 2026. Unnið er með niðurstöður könnunarinnar innan hvers skóla, eins og gerð verður grein fyrir í umbótaáætlun hvers skóla. Einnig er ýmislegt í niðurstöðunum sem mikilvægt er að nýta í vinnu á Fjölskyldusviði. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að kalla eftir ýtarlegri gögnum frá leikskólastjórum um vistunartíma.
-
3. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Mál 2602108 Allur ferill málsins
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027 lögð fyrir fjölskyldunefnd. Sviðstjóra falið að vinna áfram að starfsáætlun með stjórnendum sviðsins.
-
4. Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ
Mál 2603053 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
-
5. Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA
Mál 2602032 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
-
6. Öldungaráð - 25
Fundargerð Öldungaráðs til kynningar
- 6.1 Kynning á starfsemi og hlutverki heimahjúkrunar2603151
- 6.2 Dagur öldrunar 20262603152
- 6.3 Fræðsluheimsókn Netvís2603061
-
7. Ungmennaráð - 23
Fundagerð ungmennaráðs kynnt
- 7.1 Ungmennaráð - íþróttadagurinn 20262603085
-
8. Ungmennaráð - 22
Fundagerð ungmennaráðs kynnt
- 8.1 Ungmennaráð - Íþróttir í Fjarðabyggð
-
9. Öldungaráð - 24
Fundargerð öldungaráðs lögð fyrir fjölskyldunefnd