Bæjarstjórn, fundur 413
9. apríl 2026, kl. 16:00 til 17:05, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (13)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Birgir Jónsson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025 - síðari umræða
Mál 2603147 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:05:36
Bæjarstjóri mælti fyrir ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnan fyrir árið 2025 við síðari umræðu.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks við síðari umræðu ársreiknings Fjarðabyggðar 2025
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fagnar þeim árangri sem birtist í ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2025. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins er jákvæð, bæði í A hluta og samstæðu (A og B hluta), þar sem rekstrarniðurstaða samstæðunnar er um 850 m.kr. og A hluta um 150 m.kr.
Niðurstaðan er sérstaklega ánægjuleg í ljósi þess að hún er umfram áætlanir í heild sinni og staðfestir þann viðsnúning í rekstri sem ráðist var í þegar núverandi meirihluti tók við ábyrgð á rekstri sveitarfélagsins.
Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að þessi árangur hefur náðst samhliða því að ekki var gripið til nýrrar lántöku á árinu 2025, þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar. Fjárfestingar sveitarfélagsins hafa verið verulegar og þær mestu á kjörtímabilinu, en eru fjármagnaðar með bættri rekstrarafkomu og sjóðstreymi.
Jafnframt hefur skuldastaða sveitarfélagsins þróast í rétta átt. Skuldaviðmið hafa lækkað milli ára bæði fyrir A hluta og samstæðuna í heild, sem er skýr vísbending um sterkari fjárhagsstöðu og aukið svigrúm til framtíðar.
Meirihlutinn telur mikilvægt að halda áfram á þessari braut. Þrátt fyrir jákvæða niðurstöðu þarf undirliggjandi rekstur A hluta áfram að styrkjast til að geta staðið undir fjárfestingum og viðhaldsþörf. Það kallar á áframhaldandi aðhald, skýra forgangsröðun og ábyrga fjármálastjórn.
Árangurinn sem hér birtist er ekki tilviljun heldur afrakstur markvissrar vinnu, samstöðu bæjarstjórnar og starfsfólks sveitarfélagsins. Meirihlutinn þakkar starfsfólki og kjörnum fulltrúum fyrir þeirra framlag og leggur áherslu á að halda áfram þeirri vegferð að tryggja traustan rekstur, lækkandi skuldir og aukið svigrúm til uppbyggingar í þágu íbúa Fjarðabyggðar.
Bókun Fjarðalistans við síðari umræðu ársreiknings Fjarðabyggðar 2025
Fjarðalistinn fagnar jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2025 þrátt fyrir lakari afkomu í A-hluta en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Rekstrarniðurstaða ársins litast að verulegu leyti af sterkari tekjustofnum en gert var ráð fyrir, sér í lagi auknum skatttekjum á milli ára og hærra framlagi frá jöfnunarsjóði. Á sama tíma var launakostnaður lægri en áætlað var sem skýrist að miklu leyti af fjölda lausra stöðugilda, færri ársverkum og minni launahækkunum en gert var ráð fyrir. Ljóst er að áhrif þeirra munu að einhverju leyti færast á komandi ár. Á sama tíma er vert að nefna að annar rekstrarkostnaður sveitarfélagsins hækkaði verulega á milli ára og var um 365 milljónir umfram áætlun í A-hluta.
Ytri áhrifaþættir halda áfram að hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins. Fjármagnsliðir hafa lækkað milli ára og var 61 milljón krónum lægri en 2024 og hafa lækkað umtalsvert síðust ár. Mikilvægt er þó að undirstrika að reksturinn er áfram viðkvæmur fyrir breytingum í verðbólgu og vaxtastigi og nauðsynlegt að styrkja undirliggjandi rekstur til lengri tíma.
Engum dylst að fjárfestingarþörf sveitarfélagsins er mikil þrátt fyrir miklar framkvæmdir undanfarin ár og er því áfram áhyggjuefni að fjárfestingar ársins í A-hluta fari flestar fara fram úr áætlunum ársins. Að sama skapi eru það vonbrigði að engar fjárfestingar voru á leiktækjum í sveitarfélaginu eins og sést í ársreikningi á árinu 2025 þrátt fyrir þörf á viðhaldi og viðbótum víða.
Áskoranir í rekstri sveitarfélagsins eru áfram margar. Bætt rekstrarniðurstaða síðustu ára á rætur sínar að rekja til ákvarðana sem teknar voru snemma á kjörtímabilinu ásamt lægri fjármagnskostnaði, auknum skatttekjum ásamt auknum framlögum jöfnunarsjóðs sem jukust um tæpar 370 milljónir á milli ára. Því er ljóst að áfram þarf að sýna aga í fjármálum sveitarfélagsins og tryggja rekstrargrunn þess.
Rekstur sveitarfélagsins þarf að byggja á ábyrgri nýtingu sameiginlegra fjármuna þar sem leiðarljósið er jöfnuður og velferð. Fjarðalistinn mun áfram standa vörð um grunnþjónustu við íbúa og leggur áherslu á að breytingar í rekstri muni ekki leiða af sér skertra þjónustu né aukinni gjaldtöku.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2025 og áritar hann.
-
2. Bæjarráð - 938
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:38:16
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 30. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Kaupsamningur og afsal um Bakkabakka 1526031480:38:16
- 2.2 Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-202726031680:39:12
- 2.3 Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ26030530:40:08
- 2.4 Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA2602032
- 2.5 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður20090340:40:36
- 2.6 Eskifjarðarhöfn - stækkun20030910:41:04
- 2.7 Stefna um opinbera þjónustu2603248
- 2.8 Spurningakönnun til kjörina fulltrúa2603244
- 2.9 Frumvarp til laga um lax og silungsveiði, 530. mál2603225
- 2.10 Frumvarp til laga um lagareldi mál 5292603243
- 2.11 Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)T2603240
- 2.12 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20262601212
- 2.13 Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 20262602129
- 2.14 Ársfundur Austurbrúar 202626030240:45:16
- 2.15 Fjölskyldunefnd - 552603019F
- 2.16 Stjórn menningarstofu - 342603023F
- 2.17 Ungmennaráð - 232602022F
-
3. Bæjarráð - 939
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:41:32
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 20252603147
- 3.2 Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar25041030:41:32
- 3.3 Umsókn um styrk vegna Big jump 20262604005
- 3.4 Til umsagnar 568. mál - Atvinnuveganefnd2603258
- 3.5 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)2603273
- 3.6 Umsögn um 529. mál - Frumvarp til laga um lagareldi2603243
- 3.7 Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)T2603240
- 3.8 Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 14.apríl2604001
- 3.9 Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa mánudaginn 27. apríl2603274
- 3.10 Ályktun frá frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands2603272
-
4. Fjölskyldunefnd - 55
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:57:52
Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-20272603168
- 4.2 Skólavogin foreldrakönnun leik- og grunnskóla 2025-202626032010:57:52
- 4.3 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
- 4.4 Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ2603053
- 4.5 Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA2602032
- 4.6 Öldungaráð - 252603014F
- 4.7 Ungmennaráð - 232602022F
- 4.8 Ungmennaráð - 222602007F
- 4.9 Öldungaráð - 242602008F
-
5. Stjórn menningarstofu - 34
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:59:44
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars utan liðar 1 staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð25080670:59:44
- 5.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
- 5.3 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
-
6. Ungmennaráð - 23
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:01:36
Enginn tók til máls.
Fundargerð ungmennaráðs frá 11. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Ungmennaráð - íþróttadagurinn 20262603085
-
7. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 56
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:02:04
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði2602155
- 7.2 Byggingarleyfi Búðareyri 11-13 - Saltskemma2603221
- 7.3 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 122601071
- 7.4 Grenndarkynning Skólavegur 50A 750 FASK2604004
- 7.5 Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 62602237
- 7.6 Umsókn um lóð Garðarholt 5, 750 Fáskrúðsfirði - Fyrirspurn2604007
- 7.7 Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld2601100
- 7.8 Gamli barnaskólinn á Eskifirði2212120
- 7.9 Grunnskóli Reyðarfjarðar B-hús endurbætur2604006
- 7.10 Framkvæmdaleyfi til grjótnáms úr námu í landi Hvalness í Stöðvarfirði2604014
- 7.11 Byggingarleyfi Hæðargerði 1a2604021
-
8. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12
Mál 2601071 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:02:32
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar. Ekki bárust efnislegar athugasemdir á auglýsingartíma en umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun. Í framhaldi af auglýsingu kom í ljós að erfitt yrði að koma þremur húsum fyrir á reitnum og tillögunni því breytt þannig að gert er ráð fyrir tveimur húsum í stað þriggja. Auk þess var aðkomu að lóðinni breytt og er hún nú frá Búðareyri.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar.
-
9. Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6
Mál 2602237 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:03:00
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu óverulegrar breytingar deiliskipulags og grenndarkynningar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar ásamt niðurstöðu grenndarkynningar vegna Hafnarbrautar 6 í Neskaupstað. Grenndarkynningu er lokið og barst ein umsögn á auglýsingatíma.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu deiliskipulagsins og niðurstöðu grenndarkynningar.
-
10. Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði
Mál 2602155 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir afgreiðslu lóðarumsóknar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu umsókn um lóðin Grímseyri 5 á Fáskrúðsfirði með breytingu á byggingarreit samkvæmt uppfærðu deiliskipulagi.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum úthlutun lóðarinnar.