Bæjarráð, fundur 939
7. apríl 2026, kl. 12:00 til 13:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 413 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025
Mál 2603147 Allur ferill málsins
Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnanna lagður fram milli umræðna í bæjarstjórn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs að ganga frá ársreikningi til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu. Niðurstöður ársreiknings hafa ekki breyst milli umræðna.
-
2. Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
Mál 2504103 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningum vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum og undirritun þeirra að því loknu.
-
3. Umsókn um styrk vegna Big jump 2026
Mál 2604005 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá aðstandendum Big Jump - Mjóeyri þar sem óskað er eftir styrk vegna viðburðar á þeirra vegum um páskana 2026.
Bæjarstjóra falið að ræða við aðstandendur og leggja málið fyrir að nýju.
-
4. Til umsagnar 568. mál - Atvinnuveganefnd
Mál 2603258 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna máls nr. 568 - stofnun atvinnuveganna.
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrirliggjandi drögum
-
5. 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)
Mál 2603273 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna máls nr. 582 - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrirliggjandi drögum.
-
6. Umsögn um 529. mál - Frumvarp til laga um lagareldi
Mál 2603243 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna máls nr. 529 - Lagareldi
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggt á fyrirliggjandi drögum.
-
7. Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)T
Mál 2603240 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að umsögn Fjarðabyggðar vegna máls nr. 565 - verndar og orkunýtingaráætlun
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggt á fyrirliggjandi drögum.
-
8. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 14.apríl
Mál 2604001 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð á aðalfund Sparisjóðs Austurlands sem fram fer 14. apríl nk.
Bæjarstjóri falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
9. Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa mánudaginn 27. apríl
Mál 2603274 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð á ársfund lífeyrissjóðsins Stapa sem fram fer mánudaginn 27. apríl nk.
Sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs er falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
10. Ályktun frá frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands
Mál 2603272 Allur ferill málsins
Ályktun fulltrúafunds Skógræktarfélags Íslands lögð fram til kynningar og sent til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefndar.