Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 940

13. apríl 2026, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 414 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Kristinn Þór Jónasson og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir tengdum ofanflóðaframkvæmdum. Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmdanna á fundinum.

  2. 2. Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld

    Mál 2601100 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum í minnisblaði um kostnað og lausnir vegna erindis fjölskyldusviðs um aðstöðu og áhöld í íþróttahúsi Reyðarfjarðar.

    Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.

  3. 3. Gamli barnaskólinn á Eskifirði

    Mál 2212120 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til bæjarráðs minnisblaði vegna frágangs á jarðvegshleðslu við gamla barnaskólann á Eskifirði. Kostnaður nemur um 5,5 m.kr.

    Bæjarráð samþykkir að fari verði í framkvæmdina og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.

  4. 4. Byggingar á þekktum flóðasvæðum

    Mál 2509116 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað frá fundi Náttúruhamfaratrygginga Íslands með Fjarðabyggð um túlkun á ákvæðum trygginga vegna mannvirkja á þekktum flóðasvæðum.

  5. 5. Greining á vef Fjarðabyggðar

    Mál 2604028 Allur ferill málsins

    Lögð fram greining frá fyrirtækinu Fúnksjón sem það vann á nýjum vef Fjarðabyggðar. Í greiningunni er farið yfir uppbyggingu vefsins, notendaupplifun, leit, aðgengi, hraða, efnisframsetningu og umferð á vefnum.

    Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vinna að úrbótum sem lagðar eru til í greinargerðinni.

  6. 6. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2026

    Mál 2510062 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað um þátttöku Fjarðabyggðar í Tæknidegi fjölskyldunnar árið 2026.

    Bæjarráð samþykkir að stofnanir sveitarfélagsins taki þátt í tæknideginum eins og verið hefur undanfarin ár.

  7. 7. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir

    Mál 2601209 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða í úthlutun styrkja Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands en Fjarðabyggð fékk styrk að fjárhæð 900.000 kr. vegna sýningarhönnunar Íslenska stríðsárasafnsins. Vísað til stjórnar menningarstofu.

  8. 8. Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins

    Mál 2510038 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna slita á Sjóminjasafni Austurlands sem bæjarráð hafði samþykkt 17. nóvember sl. og bæjarstjórn staðfesti þann 20. nóvember sl. Búið er að ganga frá öllum formsatriðum vegna yfirfærslu rekstrarins og eigna til sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir yfirtöku eigna og reksturs Sjóminjasafns Austurlands og þær skuldbindingar sem hvíla á félaginu og felur bæjarstjóra undirritun nauðsynlegra gagna vegna yfirfærslunnar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2601112 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Búðareyri 12 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  10. 10. Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Áreyja

    Mál 2409073 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins nr. IRN24090024 vegna stjórnsýslukæru landeiganda Áreyja í Reyðarfirði.

  11. 11. Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Óseyrar

    Mál 2408089 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins nr. IRN24080065 vegna stjórnsýslukæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.

  12. 12. Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi

    Mál 2602123 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið. Framkvæmdin fékk liðlega 45 m.kr. styrk.

  13. 13. Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin

    Mál 2602079 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Fjarðabyggðarhöllina. Framkvæmdin fékk liðlega 46 m.kr. styrk.

  14. 14. Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll

    Mál 2602078 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til kaupa á nýjum slökkvibíl. Styrkur vegna kaupanna nemur liðlega 15 m.kr. styrk.

  15. 15. Aðalfundarboð Leigufélagsins Bríetar

    Mál 2604036 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á aðalfund Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn verður 21. apríl 2026 kl. 12 hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun að Borgartúni 21.

    Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  16. 16. Ársfundur 2026

    Mál 2604035 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundur StarfA sem haldinn verður 29. apríl í húsnæði félagsins að Miðvangi 1-3 á Egilsstöðum.

    Bæjarráð felur Laufeyju Þórðardóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.

  17. 17. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

    Mál 2601118 Allur ferill málsins

    Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.

  18. 18. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn

    Mál 2510179 Allur ferill málsins

    Sameiginlegur fundur hafnarstjórnar og bæjarráðs.

    Farið yfir niðurstöður útboðs dýpkunarframkvæmda við bryggju við athafnasvæði Eskju ehf. á Leirubakka á Eskifirði.

    Opnun tilboða fór fram kl. 10:00.

    Lögð fram opnunarskýrsla útboðsins.

    Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau yfir kostnaðaráætlun.

    Bæjarráð felur Cowi, umsjónaraðila útboðsins, að yfirfara tilboðin og leggja niðurstöður fyrir hafnarstjóra.

  19. 19. Gjaldskrár 2026

    Mál 2604046 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga um breytingu á þjónustugjaldskrám fyrir árið 2026.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að þjónustugjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um 3% frá og með næstu mánaðarmótum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu. Breytingum vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.

    Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu og hafa þannig áhrif á kostnaðarþróun í samfélaginu. Með því að lækka gjaldskrárnar vill Fjarðabyggð senda skýr skilaboð um að sveitarfélagið ætli að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa.

    Bæjarráð telur að svigrúm sé til þessarar lækkunar á grundvelli bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar.

    Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnvöld til að grípa til sambærilegra aðgerða á sínum vettvangi með því að endurskoða gjaldskrár ríkisins og draga úr álögum þar sem svigrúm er til staðar.