Bæjarráð, fundur 941
20. apríl 2026, kl. 08:30 til 12:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs.
Mál 2604106 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga og hugsanlegar breytingar á stofnsamningi safnsins sem lagðar yrðu fyrir næsta aðalfund þess er varðar rekstur þess og húsnæðiskostnað.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir sem lagðar eru fram og vísar þeim til frekari úrvinnslu stjórnar safnsins sem síðan yrðu lagðar fyrir aðalfund safnsins.
-
2. Beiðni um styrk til kaups á björgunardróna
Mál 2604034 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni frá Björgunarsveitinni Brimrúnu um framlag fyrir nýjum sérhæfðum björgunardróna sem getur flutt lífsnauðsynlegan búnað beint á slysstað, til dæmis fyrstu hjálp, hitateppi eða samskiptabúnað.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
3. Ferðakostnaðar vegna íþróttaiðkunar
Mál 2604057 Allur ferill málsins
Fjallað um áskorun frá KSÍ til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026. Í henni var lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.
Bókun í bæjarráði Fjarðabyggðar - ferðakostnaður vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum af síhækkandi ferðakostnaði sem fellur á íþróttafélög og foreldra barna sem stunda íþróttir og tómstundir á landsbyggðinni. Ljóst er að þessi kostnaður er orðinn verulegur og getur í sumum tilvikum haft áhrif á þátttöku barna í skipulögðu starfi.
Íþróttafélög í Fjarðabyggð þurfa oft að ferðast langar vegalengdir til æfinga, keppna og viðburða, einkum þegar sækja þarf mót og keppnir á höfuðborgarsvæðið. Þessi staða skapar ójafnræði milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis og leggur aukna fjárhagslega byrði á fjölskyldur út á landi.
Bæjarráð telur mikilvægt að bregðast við þessari þróun og felur bæjarstjóra að vinna tillögur að úrbótum í samráði við íþróttahreyfinguna og önnur sveitarfélög. Þar verði meðal annars skoðaðir möguleikar á:
-
auknum stuðningi við ferðakostnað vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna,
-
samstarfi við atvinnulíf og aðra hagaðila um uppbyggingu ferðasjóðs,
-
sameiginlegum aðgerðum sveitarfélaga til að þrýsta á stjórnvöld um aukinn stuðning við landsbyggðina í þessum málaflokki.
Bæjarráð leggur áherslu á að tryggja jafnan aðgang barna að íþrótta- og tómstundastarfi óháð búsetu og að fjárhagsleg staða foreldra verði ekki hindrun fyrir þátttöku.
-
4. Forkaupsréttur að Gullveri NS-12
Mál 2604058 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Síldarvinnslunni hf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að skipinu Gullveri NS-12.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Gullveri NS-12.
-
5. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til umfjöllunar bæjarráðs framkvæmdum og fjármögnun þeirra en leggur áherslu á að mikilvægt sé að hægt sé að ljúka 1. og 2. áfangi við endurgerð safnsins fylgi í beinu framhaldi þannig að safnið verði komið í rekstur með þeim áföngum sumarið 2027.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að vinna málið áfram ásamt því að sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs er falið að fyrsta áfanga verði lokið á árinu og unnið sé að öðrum áfanga.
-
6. Samskiptastefna 2026
Mál 2604082 Allur ferill málsins
Framlögð drög að endurskoðaðri samskiptastefnu Fjarðabyggðar en upphafleg stefna gerði ráð fyrir endurskoðun hennar fyrir árslok 2024 það er þegar reynsla væri komin á hana.
Bæjarráð samþykkir breytingar á stefnunni fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
7. Ósk um kaup á Gilsárstekk í Breiðdal
Mál 2604092 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Guðnýjar Harðardóttur vegna kaupa hennar á jörðinni Gilsárstekkur í Breiðdal af Ríkissjóði þar sem óskað er eftir meðmælum sveitarstjórnar.
Bæjarráð veitir meðmæli sín með kaupum Guðnýjar Harðardóttur á jörðinni og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
8. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Fjallað um skipan kjörstjórna í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. með hliðsjón af vanhæfi kjörstjórnarmanna.
Formaður yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar fór yfir skipun kjörnefnda sveitarfélagsins fyrir komandi kosningar 16. maí nk.
-
9. Sveitarstjórnarkosningar 2026
Mál 2602135 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar upplýsingar frá Landskjörstjórn vegna meðferðar kjörskrár fyrir sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí n.k.
-
10. Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Mál 2604064 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Umboðsmanni barna um að sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga standi fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.
Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð fjalli um málið og skili bæjarráð tillögu sinni. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að fylgja máli eftir.
-
11. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026
Mál 2509098 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá stuðningsþjónustu sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
12. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2026
Mál 2509033 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
13. Gjaldskrá leikskóla 2026
Mál 2509041 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá leikskólagjalda sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
14. Gjaldskrá grunnskóla 2026
Mál 2509036 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá grunnskólana sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
15. Gjaldskrá tónlistarskóla 2026
Mál 2509100 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá tónlistarskóla sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
16. Gjaldskrá bókasafna 2026
Mál 2508182 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá bókasafna sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
17. Gjaldskrá safna 2026
Mál 2508018 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá safna sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
18. Gjaldskrá félagsheimila 2026
Mál 2508187 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá félagsheimila sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
19. Gjaldskrá frístundaheimila 2026
Mál 2509031 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá frístundaheimila sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
20. Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2026
Mál 2508186 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá félagsmiðstöðva sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
21. Gjaldskrá sundlauga 2026
Mál 2509099 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá sundlauga sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
22. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2026
Mál 2509042 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá líkamsræktarstöðva sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
23. Gjaldskrá íþróttahúsa 2026
Mál 2509040 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá íþróttahúsa sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
24. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2026
Mál 2509039 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá íþróttahúsa, stórviðburðir sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
25. Gjaldskrá skíðasvæðis 2026
Mál 2509093 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá skíðasvæðis sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
26. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2026
Mál 2509038 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá hunda- og kattahalds sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
27. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026
Mál 2509095 Allur ferill málsins
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá skipulags- og byggingarmála sem tekur gildi 1. maí 2026.
-
28. Fundarboð frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þriðjudaginn 21. apríl
Mál 2604095 Allur ferill málsins
Framlag fundarboð umhverfis- og samgöngunefndar þann 21. apríl þar sem fjallað verður um 505. mál, sveitarstjórnarlög.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka þátt í fundinum.
-
29. Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélög
Mál 2604076 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Tillaga að breytingum á samþykktum Samtaka orkusveitafélaga verður framlögð.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð á fundinum.
-
30. Ársfundur 2026
Mál 2604065 Allur ferill málsins
Boðað er til ársfundar Brákar íbúðafélags hses. þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 12:00.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð á fundinum.
-
31. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Mál 2510179 Allur ferill málsins
Sameiginlegur fundur hafnarstjórnar og bæjarráðs.
Farið yfir niðurstöðu yfirferðar umsjónarmanns útboðs á dýpkun hafnarsvæðis við Leirubakka á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir skýringarfundi með bjóðendum þar sem tilboðin eru yfir kostnaðaráætlun og felur hafnarstjóra ásamt verkefnastjóra hafna, sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og umsjónarmanni útboðs að vinna málið áfram og leggja fyrir sameiginlegan fund bæjarráðs og hafnarstjórnar þann 20. apríl.
-
32. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2604093 Allur ferill málsins
Framlögð greinargerð um stöðu framkvæmda það sem af er ári og framkvæmdir framundan.
-
33. Framkvæmdir við miðbæ Neskaupstaðar
Mál 2604107 Allur ferill málsins
Fjallað um framkvæmdir í miðbæ Neskaupstaðar samkvæmt deiliskipulagi svæðisins, torg í Stekkjargötu en rekstraráætlun fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir fjármögnun til framkvæmdanna.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir verði hafnar og vísar erindi til umfjöllunar skipulags- og framkvæmdanefndar og sviðsins til undirbúnings og framkvæmdar.
-
34. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Mál 2205170 Allur ferill málsins
Framsóknarflokkurinn skipar Jón Björn Hákonarson sem varamann í skipulags- og framkvæmdanefnd í stað Karenar Malmquist Ragnarsdóttur sem flutt er búferlaflutningum.
-
35. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 57
Framlögð fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 35.1 Niðurgreiðslur á raforku2604011
- 35.2 Hjólabraut á Norðfirði2509076
- 35.3 Verðkönnun uppsetning á nýjum ljósum í Fjarðabyggðarhöllina2601238
- 35.4 Refa- minkaveiði 20262601003
- 35.5 Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi2602123
- 35.6 Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll2602078
- 35.7 Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin2602079
- 35.8 Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl012512023
- 35.9 Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl022512021
-
36. Stjórn menningarstofu - 35
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 36.1 Verkefni menningarstofu 20262602053
- 36.2 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins2510108
- 36.3 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð2508067
- 36.4 Varðveisluhúsnæði fyrir söfn2604013
- 36.5 Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi2602123
- 36.6 Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir2601209
-
37. Hafnarstjórn - 337
Framlögð fundargerð hafnarstjórnar frá 13. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 37.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn2510179
-
38. Öldungaráð - 25
Framlögð fundargerð öldungaráðs frá 16. mars til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 38.1 Kynning á starfsemi og hlutverki heimahjúkrunar2603151
- 38.2 Dagur öldrunar 20262603152
- 38.3 Fræðsluheimsókn Netvís2603061