NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 57
15. apríl 2026, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 941 liður 35
Framlögð fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Niðurgreiðslur á raforku
Mál 2604011 Allur ferill málsins
Niðurgreiðslur á raforku. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að kynna málið fyrir íbúum.
-
2. Hjólabraut á Norðfirði
Mál 2509076 Allur ferill málsins
Hjólabraut á Norðfirði tillaga að staðsetningu eftir samtal við Fönn - hjólafélag. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og felur sviðstjóra að vera í sambandi við umsækjanda.
-
3. Verðkönnun uppsetning á nýjum ljósum í Fjarðabyggðarhöllina
Mál 2601238 Allur ferill málsins
Niðurstöður verðkönnunar á uppsetning á nýjum ljósum í Fjarðabyggðarhöllina. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Multitask ehf.
-
4. Refa- minkaveiði 2026
Mál 2601003 Allur ferill málsins
Drög að nýjum samning vegna refa- minkaveiði 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir samninginn og vísar honum til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
5. Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
Mál 2602123 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið. Framkvæmdin fékk liðlega 45 m.kr. styrk.
-
6. Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll
Mál 2602078 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til kaupa á nýjum slökkvibíl. Styrkur vegna kaupanna nemur liðlega 15 m.kr. styrk.
-
7. Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin
Mál 2602079 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Fjarðabyggðarhöllina. Framkvæmdin fékk liðlega 46 m.kr. styrk.
-
8. Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01
Mál 2512023 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
9. Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02
Mál 2512021 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.