Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 56

8. apríl 2026, kl. 16:00 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 413 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði

    Mál 2602155 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagt lóðarblað og breytingu á byggingarreit samkvæmt uppfærðu deiliskipulagi. Reiturinn færist og er um 4 metra frá Grímseyri. Nenfdin samþykkir að úthluta lóðinni og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

  2. 2. Byggingarleyfi Búðareyri 11-13 - Saltskemma

    Mál 2603221 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Búðareyri 11-13 - Saltskemma. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12

    Mál 2601071 Allur ferill málsins

    Auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12 er lokið. Ekki bárust efnislegar athugasemdir en umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun. Tillagan var auglýst 9.02.2026 - 23.03.2026. Í framhaldi af auglýsingu kom í ljós að erfitt yrði að koma þremur húsum fyrir á reitnum og tillögunni því breytt þannig að gert er ráð fyrir tveimur húsum í stað þriggja. Auk þess var aðkomu að lóðinni breytt og er hún nú frá Búðareyri. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áorðnar breytingar og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa niðurstöður nefndarinnar. Málinu er vísað í bæjarstjórn til afgreiðslu.

  4. 4. Grenndarkynning Skólavegur 50A 750 FASK

    Mál 2604004 Allur ferill málsins

    Borist hefur umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Skólavegi 50A á Fáskrúðsfirði. Fyrir liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar á umsókninni. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir Skólavegi 50 og 52a.

  5. 5. Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6

    Mál 2602237 Allur ferill málsins

    Grenndarkynningu er lokið og barst ein umsögn á auglýsingatíma kynningarinnar frá Guðrúnu Óskarsdóttur. Fyrir liggur að taka afstöðu til umsagnarinnar og afgreiðslu málsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi enn leggur áherslu á gott samráð milli allra hlutaðeigandi aðila. Málinu er vísað í bæjarstjórn.

  6. 6. Umsókn um lóð Garðarholt 5, 750 Fáskrúðsfirði - Fyrirspurn

    Mál 2604007 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn varðandi lóð Garðaholt 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd kallar eftir tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem hæðarsetning hússins og sneiðing í lóðina kemur fram.

  7. 7. Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld

    Mál 2601100 Allur ferill málsins

    Stjórnandi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar og fasteigna- og framkvæmdafulltrúi leggja fram minnisblað vegna kostnaðar og lausna vegna erindi fjölskyldusviðs. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að uppfæra minnisblað og vísar málinu í bæjarráð.

  8. 8. Gamli barnaskólinn á Eskifirði

    Mál 2212120 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar vegna hleðslu við gamla barnaskólann á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga að tillögu tvö eins og lagt er til í minnisblaðinu og vísar málinu í bæjarráð.

  9. 9. Grunnskóli Reyðarfjarðar B-hús endurbætur

    Mál 2604006 Allur ferill málsins

    Niðurstöður verðkönnunar á endurbótum á B-húsi Grunnskólans á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, VHE ehf.

  10. 10. Framkvæmdaleyfi til grjótnáms úr námu í landi Hvalness í Stöðvarfirði

    Mál 2604014 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi til grjótnáms úr námu í landi Hvalness í Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.

  11. 11. Byggingarleyfi Hæðargerði 1a

    Mál 2604021 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Hæðargerði 1a. Skipulags- og framkvæmdanefnd telur byggingaráformin samræmast gildandi deiliskipulagi og samþykkir einnig byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.