NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 55
19. mars 2026, kl. 16:30 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 936 liður 10
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 412 liður 7
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Grenndarkynning Strandgata 28, 740 Norðfirði
Mál 2603086 Allur ferill málsins
Niðurstaða grenndarkynningar v. Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Engar athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
2. Grenndarkynning Strandgata 6, Norðfirði
Mál 2601222 Allur ferill málsins
Niðurstaða grenndarkynningar v. framkvæmda við Strandgötu 6. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdum. Nefndin vísar grenndarkynningu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
3. Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði
Mál 2603146 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar henni í bæjarráð.
-
4. Deiliskipulag Nes- og Bakkagil Norðfirði
Mál 2601090 Allur ferill málsins
Niðurstaða grenndarkynningar v. óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Nes- og Bakkagil Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdum og vísar erindinu í bæjarstjórn til staðfestingar.
-
5. Byggingarleyfi Strandgata 28, 740 Norðfirði
Mál 2603065 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Strandgötu 28, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Byggingarleyfi Strandgata 6, 740 Norðfjörður
Mál 2601221 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Strandgötu 6, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
7. Grenndarstöðvar.
Mál 2603131 Allur ferill málsins
Lögð fram útfærsla og staðsetningar á grenndarstöðvum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppsetningu á grenndarstöðvum og felur starfsfólki sviðsins að vinna málið áfram.
-
8. Samráðsfundur um almenningssamgöngur á austurlandi
Mál 2603134 Allur ferill málsins
Lögð fram kynning og fundargerð frá samráðsfundi um almenningssamgöngur á austurlandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
9. Framkvæmdaleyfi sjóvörn Selnes 3-5
Mál 2603173 Allur ferill málsins
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir grjótvörn við Selnes 3-5. Skipulags- og framkvæmdaleyfi felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
-
10. Framkvæmdaleyfi - Norðfjarðaá flugvallarendi
Mál 2603203 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi - Norðfjarðaá flugvallarendi. Skipulags- og framkvæmdaleyfi felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.