Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Mál 2604064 Fyrst á dagskrá 20. apríl 2026, síðast 13. maí 2026. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Ungmennaráð.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2026

    Bæjarráð, fundur 941 liður 10

    Framlagt erindi frá Umboðsmanni barna um að sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga standi fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.

    Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð fjalli um málið og skili bæjarráð tillögu sinni. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að fylgja máli eftir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 414 liður 2.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 941“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Ungmennaráð, fundur 24 liður 3

    Bæjarráð vísar til ungmennaráðs erindi frá Umboðsmanni barna um að sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga standi fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu. Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð fjalli um málið og skili bæjarráð tillögu sinni. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að fylgja máli eftir.

    Ungmennaráð fjallaði um erindið:

    Áhugi er fyrir skuggakosningum í grunnskólum á unglingastigi

    Sviðstjóri felur forstöðumönnum frístundamála að svara erindi bæjarráðs fyrir hönd ungmennaráðs.

  4. Bæjarstjórn, fundur 415 liður 13.3

    Fundargerðin „Ungmennaráð - 24“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is