Stjórn menningarstofu, fundur 35
15. apríl 2026, kl. 14:30 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 941 liður 36
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 8
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. apríl utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni menningarstofu 2026
Mál 2602053 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni menningarstofu á komandi sumri og verkefni síðustu mánaða. Farið yfir frumdrög dagskrár Innsævis og innihalds ásamt verkefnum sumarsins sem tengjast hátíðinni.
Stjórn lýsir yfir ánægju með Innsævi og leggur áherslu á að kynning hefjist sem fyrst fyrir íbúum Austurlands.
-
2. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við fyrsta áfanga uppbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins og fjárfestingaráætlun ásamt framgang framkvæmda við 2. áfanga uppbyggingarinnar.
Stjórn vísar umfjöllun um framkvæmdirnar og fjármögnun þeirra til bæjarráðs en leggur áherslu á að mikilvægt sé að hægt sé að ljúka 1. og 2. áfangi við endurgerð safnsins fylgi í beinu framhaldi þannig að safnið verði komið í rekstur með þeim áföngum sumarið 2027.
-
3. Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Drög rammasamninga um framlög sveitarfélagsins til hátíðanna og framkvæmd þeirra voru send til forsvarsmanna hátíðanna til skoðunar að afloknum sameiginlegum fundi með fulltrúum þeirra. Engar athugasemdir hafa borist.
Stjórn staðfestir rammasamninga og felur bæjarstjóra undirritun þeirra og upplýsingafulltrúa eftirfylgni og samskipti við hátíðirnar.
-
4. Varðveisluhúsnæði fyrir söfn
Mál 2604013 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi um sameiginlegt varðveislurými safna á Austurlandi.
Stjórn menningarstofu hefur haft það sem markmið að byggja upp sameiginlegt varðveisluhúsnæði fyrir söfn Fjarðabyggðar og er með húsnæði sem verður byggt upp sem slíkt á Eskifirði. Þar af leiðandi telur stjórnin að hún hafi ekki þörf fyrir frekara varðveisluhúsnæði fyrir muni safnanna.
-
5. Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
Mál 2602123 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið. Framkvæmdin fékk liðlega 45 m.kr. styrk.
-
6. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir
Mál 2601209 Allur ferill málsins
Framlögð niðurstaða í úthlutun styrkja Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands en Fjarðabyggð fékk styrk að fjárhæð 900.000 kr. vegna sýningarhönnunar Íslenska stríðsárasafnsins.