Stjórn menningarstofu, fundur 36
11. maí 2026, kl. 14:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 415 liður 11
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Fjallað um framgang framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið en uppsteypa gengur eftir áætlun og von er á bröggum til landsins í byrjun júní. Fjallað um framkvæmdir sem fylgja í kjölfar áfanganna. Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs mætir á fund.
-
2. Verkefni safnanna studd af Safnasjóði
Mál 2510141 Allur ferill málsins
Forstöðumaður fór yfir framgang verkefna safna fyrir sumarið 2026, þ.m.t. verkefni sem hlutu styrki úr Safnasjóði á árinu 2026.
Fjallað um stefnumörkun safnanna, viðbragðsáætlanir, söfnunarstefnu og þjónustu. Sjóminjasafn Austurlands er komin í beina umsjón Menningarstofu þar sem Fjarðabyggð hefur tekið við rekstri þess. Hluti af stefnumörkun safnanna felst í því að sækja um viðurkenningu fyrir söfnin öll.
-
3. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 2211009 Allur ferill málsins
Farið yfir framgang endurskoðunar stefnunnar og stöðu hennar en vinnustofan Þín rödd, okkar menning var haldin 8. apríl í Safnaðarheimili á Reyðarfirði með hagaðilum, kjörnum fulltrúum og starfsmönnum menningarstofu. Áformað er að vinnustofa 2 verði haldin með haustinu.
-
4. Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
Mál 2510038 Allur ferill málsins
Stjórn Sjóminjasafns Austurlands og bæjarstjórn hafa samþykkt slit safnsins og verið er að ganga frá yfirfærslu eigna og frágangi skjala. Safnið verður rekið eins og önnur minjasöfn í menningarmálaflokknum hjá Fjarðabyggð með sömu áherslum og skyldum og verið hefur.
-
5. Skjala- og myndasafn Fjarðabyggðar
Mál 2409018 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni Mynda- og skjalasafns Fjarðabyggðar. Farið yfir verkefni tengd skjalasafni Fjarðabyggðar og flutning gagna ásamt almennri starfsemi safnsins.
-
6. Verkefni menningarstofu 2026
Mál 2602053 Allur ferill málsins
Forstöðumaður fór yfir framgang verkefna menningarstofu frá fyrri fundi og dagskrá Innsævis, lista- og menningarhátíðar Fjarðabyggðar.
-
7. Umsókn í Bókasafnasjóð vegna fjölbreyttrar dagskrár á bókasöfnum
Mál 2602077 Allur ferill málsins
Menningarstofa Fjarðabyggðar leiddi umsókn í bókasafnasjóð fyrir viðburðahaldi á bókasöfnum í Fjarðabyggð sem hluti af reglulegum hátíðarhöldum. Úr styrksúthlutun hlaut MF 2.000.000 kr. fyrir þessu tímabundna verkefni á árinu 2026.