Stjórn menningarstofu, fundur 34
23. mars 2026, kl. 14:00 til 15:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 938 liður 16
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 413 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars utan liðar 1 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Fundur með fulltrúum bæjarhátíðanna í Fjarðabyggð þar sem farið var yfir drög rammasamnings um framlög sveitarfélagsins til hátíðanna og framkvæmd þeirra.
Stjórn samþykkir drög rammasamninga fyrir sitt leyti en sendir til forsvarsmanna hátíðanna samninga til skoðunar. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi stjórnarinnar.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Mál 2603195 Allur ferill málsins
Tekin umræða um áherslur í menningarmálaflokknum á árinu 2027 í rekstri og fjárfestingu. Sviðsstjórar og starfsmenn málaflokka vinna að undirbúningi áætlunar fyrir næsta ár og verða tillögur kynntar fyrir nýjum nefndum í upphafi nýs kjörtímabils.
-
3. Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Mál 2510108 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við fyrsta áfanga uppbyggingar safnsins og áætlun.
Tekið fyrir á næsta fundi stjórnar þegar frekari upplýsingar hafa verið teknar saman.