Stjórn menningarstofu, fundur 33
10. mars 2026, kl. 14:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 935 liður 16
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 412 liður 13
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Fundur var haldinn með fulltrúum ungmenna- og íþróttafélaganna í Fjarðabyggð um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda.
Kynntur var rammi að skipulagi og fjármögnun hátíðarinnar.
Fulltrúar félaganna eru sáttir við framkvæmdina og samþykkir stjórn tillöguna sem send verður til félögunum.
Jafnframt voru lögð fram drög samningi við bæjarhátíðir í Fjarðabyggð.
Stjórn samþykkir að fulltrúar hátíðanna verði boðaðir á næsta fund stjórnarinnar.
-
2. Afgreiðsla menningarstyrkja 2026
Mál 2603052 Allur ferill málsins
Tillaga forstöðumanns að úthlutun menningarstyrkja vegna umsókna 2026 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu hjá stjórn menningarstofu.
Stjórn menningarstofu fór yfir umsóknir og rökstuðning um afgreiðslu umsóknanna.
Stjórn samþykkir tillögu forstöðumanns og felur honum að ganga frá úthlutun og tilkynna um niðurstöðu hennar til umsækjendanna.
-
3. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 2211009 Allur ferill málsins
Farið yfir næstu skref varðandi endurskoðun stefnunnar. Fundur er áformaður 8. apríl sem kynningarfundur um endurskoðun menningarstefnunnar. Jafnframt samþykkt að haldin verði vinnustofa um menningarmál í framhaldi kynningarfundar.
-
4. Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Mál 2602047 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar.
Lagt fram til kynningar.
-
5. Verkefni menningarstofu 2026
Mál 2602053 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar greinargerð um úthlutanir listamannadvalar í Þórsmörk árið 2026.