Stjórn menningarstofu, fundur 32
16. febrúar 2026, kl. 14:00 til 15:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 932 liður 16
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofur frá 16. febrúar.
Bæjarstjórn, fundur 411 liður 7
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
Mál 2508067 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um málefni bæjarhátíðanna í Fjarðabyggð og 17. júní hátíðarhalda. Farið yfir drög að samningum og ramma fyrir hátíðirnar. Vísað til næsta funda stjórnar. Samþykkt að fá fulltrúa frá aðalstjórnum ungmenna- og íþróttafélaganna á næsta fund stjórnarinnar.
-
2. Reglur um menningarstyrki
Mál 2602064 Allur ferill málsins
Teknar fyrir að nýju reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag þeirra eftir yfirferð forstöðumanns og bæjarritara.
Stjórn samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.