Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 932

23. febrúar 2026, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 411 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 3

    Mál 2602171 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2025.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Efnahagur Fjarðabyggðar

    Mál 2602172 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga fjármálastjóra um fyrirkomulag skammtímafjármögnunar sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir að sviðsstjóra fjármála- og greininarsviðs sé veitt heimild til að kalla eftir tímabundinni yfirdráttarheimild allt að fjárhæð 200 m.kr. ef á þarf að halda.

  3. 3. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026

    Mál 2602058 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Reglur um menningarstyrki

    Mál 2602064 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um úthlutun menningarstyrkja.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  5. 5. Vallavinnusamningur 2026

    Mál 2601098 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs nýjum vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir tímabilið 01.01.2026 - 31.12.2028.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  6. 6. Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar

    Mál 2602099 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu nefndarinnar að heimila útleigu á gamla ræktarsalnum í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði til lögreglunnar til eins árs samkvæmt framlögðum leigusamningi.

    Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður

    Mál 2602176 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa um undirbúning þróunarverkefnis við Eyri, 740 Norðfirði.

    Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdanefndar undirbúningi og framkvæmd verkefnisins.

  8. 8. Sveitarstjórnarkosningar 2026

    Mál 2602135 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar þar sem tillaga er gerð að kjörstöðum og opnunartímum þeirra vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.

    Lagt er til að kjörstaðir og talningastaður í Fjarðabyggð verði:

    Sólbrekka í Mjóafirði

    Nesskóli í Neskaupstað

    Eskifjarðarkirkja á Eskifirði

    Safnaðarheimilið á Reyðarfirði

    Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði

    Grunnskólinn á Stöðvarfirði

    Grunnskólinn á Breiðdalsvík

    Talningarstaður í Eskifjarðarkirkju

    Kjörstaðir verði opnir frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði til kl. 14:00.

    Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna sveitarstjórnakosninga 16. maí nk. Vísað til bæjarstjórnar.

  9. 9. Öruggara Austurland - samstarf og samvinna.

    Mál 2602093 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Lögreglurstjórans á Austurlandi ásamt því að kynnt er stefna embættisins sem felst í áhersla er lögð á öryggi og öryggistilfinningu íbúa með markvissri, sýnilegri og forvarnamiðaðri löggæslu sem skipulögð er út frá gögnum og stöðu mála.

  10. 10. Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana

    Mál 2602156 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu fyrir 2026 til 2030.

  11. 11. Erindi Krabbemeinsfélags Austfjarða um styrk til afnota af Skrúð

    Mál 2602182 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Krabbameinsfélags Austfjarða þar sem óskað er eftir styrk til afnota af Skrúð vegna mottumarsviðburðar 16. til 19. mars.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnotum af félagsheimilinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  12. 12. Fab Lab Ársskýrsla 2025

    Mál 2602162 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Fab Lab Austurlands lögð fram til kynningar.

  13. 13. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026

    Mál 2602129 Allur ferill málsins

    Fundargerðir 88. og 89. fundar lagðar fram til kynningar

  14. 14. Fjölskyldunefnd - 51

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar.

    1. 14.1 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
    2. 14.2 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 20262602058
    3. 14.3 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    4. 14.4 Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - merki2602098
    5. 14.5 Þróun mála barnaverndar og samþættrar þjónustu árin 2023-20262602097
    6. 14.6 Vallavinnusamningur 20262601098
    7. 14.7 Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar2602099
  15. 15. Hafnarstjórn - 334

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar.

    1. 15.1 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss2602048
    2. 15.2 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn2510179
    3. 15.3 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    4. 15.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    5. 15.5 Sjóvarnir á Breiðdalsvík2601162
    6. 15.6 Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar2502061
    7. 15.7 Öryggismál hafna2206100
    8. 15.8 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
    9. 15.9 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    10. 15.10 Beiðni um umsögn v. endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers2602013
    11. 15.11 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20262601118
  16. 16. Stjórn menningarstofu - 32

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofur frá 16. febrúar.

    1. 16.1 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð2508067
    2. 16.2 Reglur um menningarstyrki2602064