Fjölskyldunefnd, fundur 51
16. febrúar 2026, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 932 liður 14
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar.
Bæjarstjórn, fundur 411 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Mál 2602108 Allur ferill málsins
Fyrstu drög að starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027 lögð fyrir fjölskyldunefnd.
-
2. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Mál 2602058 Allur ferill málsins
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026 lagðar aftur fyrir fjölskyldunefnd vegna þess að eldri reglur voru lagðar til grundvallar endurskoðun síðasta fundar en er leiðrétt í meðfylgjandi drögum að reglum. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.
-
3. Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Mál 2602047 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins að óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megi regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar. Stjórnendum fjölskyldusviðs falið að vinna tillögur og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
4. Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - merki
Mál 2602098 Allur ferill málsins
Tillaga að merki sameiginlegrar barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leyti sameiginlegt merki Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
-
5. Þróun mála barnaverndar og samþættrar þjónustu árin 2023-2026
Mál 2602097 Allur ferill málsins
Þróun mála í barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í Fjarðabyggð árin 2023-2025 kynnt.
-
6. Vallavinnusamningur 2026
Mál 2601098 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir nýjan vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir tímabilið 01.01.2026 - 31.12.2028. Samningsfjárhæð fyrir árið 2026 er samþykkt samkvæmt sundurliðun í samningnum og samningsfjárhæð fyrir árin 2027 og 2028 tekur breytingum í samræmi við almenna verðlagsbreytingu í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar samkvæmt ákvæðum samningsins. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
-
7. Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar
Mál 2602099 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd heimilar útleigu á gamla ræktarsalnum í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði til lögreglunnar til eins árs samkvæmt framlögðum leigusamningi, þar sem leigan er skýrt afmörkuð við gamla ræktarsalinn (speglasalur undanskilinn) og leigutaki annast og greiðir fyrir öll þrif á hinu leigða rými.