Fjölskyldunefnd, fundur 52
2. mars 2026, kl. 16:15 til 18:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 934 liður 10
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 412 liður 8
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Birgir Jónsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kynning á skráningakerfi fyrir leikskóla Wise
Mál 2602229 Allur ferill málsins
Björn Kristjánsson Kolbrúnarson, Sigrún Gunnarsdóttir og Jón Halldór Oddsson ráðgjafar frá Wise kynntu nýtt skráningakerfi fyrir leikskóla fyrir fjölskyldunefnd.
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
2. Styrkumsókn - Sterkari út í lífið
Mál 2602133 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
-
3. Hjólasöfnun 2026
Mál 2602195 Allur ferill málsins
Hjólasöfnun Reiðhjólabænda 2026 sem áður hét Hjólasöfnun Barnaheilla kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
Búið er að opna fyrir umsóknir.
Stjórnanda félagsþjónustu falið að vekja athygli á verkefninu og aðstoða þá sem þurfa við að skila inn umsóknum.
-
4. Víkingurinn 2026 - Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2602198 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni Félags kraftamanna vegna keppninnar VÍKINGURINN 2026, keppni sterkustu manna landsins.
Fjölskyldunefnd lýsir yfir vilja til að aðstoða við keppnishald með því að veita mótshöldurum almenna aðstoð, aðgang að aðstöðu og útvega gistingu. Því miður er ekki hægt að veita fjárstyrk að þessu sinni.