Bæjarráð, fundur 934
9. mars 2026, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 412 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson og Birgir Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kaupsamningur og afsal um Sunnugerði 7
Mál 2603062 Allur ferill málsins
Framlögð drög að kaupsamningi um Sunnugerði 7 á Reyðarfirði milli Brákar íbúðafélags ehf. og Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir kaupsamninginn og felur bæjarstjóra undirritun og frágang skjala vegna sölunnar.
-
2. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
Mál 2603063 Allur ferill málsins
Fjallað um atvinnumál á Stöðvarfirði.
Bæjarstjóra falið að senda Byggðastofnun bréf vegna fyrirhugaðrar sæbjúgnavinnslu á Stöðvarfirði.
-
3. Umsókn um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum
Mál 2602006 Allur ferill málsins
Framlögð til staðfestingar umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög vegna kaupa á tveimur íbúðum á Eskifirði.
-
4. Fasteignir í eigu Fjarðabyggðar
Mál 2404100 Allur ferill málsins
Fjallað um niðurrif á fasteignum við Íslenska stríðsárasafnið að Heiðarveg 37.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að afla tilskilinna leyfa til niðurrifs tveggja ónýtra húsa sem standa ofan safnsins og þau verði rifin á árinu. Kostnaði vegna rifanna vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
-
5. Fundarboð á hluthafafund
Mál 2602222 Allur ferill málsins
Farið yfir niðurstöður hluthafafundar Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn var 5. mars sl.
-
6. Viljayfirlýsing
Mál 2511118 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni tengdum uppbygginu húsnæðis fyrir 60 ára og eldri.
-
7. Forkaupsréttur að Skugga HU-41
Mál 2603084 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Gullrúnu ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að bátnum Skuggi HU-41.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Skuggi HU-41.
-
8. Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf
Mál 2603021 Allur ferill málsins
Framlagt boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 20. mars 2026 kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi frá umboði sveitarfélagsins fyrir hönd Fjarðabyggðar á aðalfundinn.
-
9. Ársfundur Austurbrúar 2026
Mál 2603024 Allur ferill málsins
Framlagt boð á ársfundar Austurbrúar 2026 sem verður haldinn í Skrúð á Fáskrúðsfirði, föstudaginn 20. mars 2026 kl. 13:00.
Bæjarfulltrúar munu sækja ársfundinn.
-
10. Fjölskyldunefnd - 52
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 10.1 Kynning á skráningakerfi fyrir leikskóla Wise2602229
- 10.2 Styrkumsókn - Sterkari út í lífið2602133
- 10.3 Hjólasöfnun 20262602195
- 10.4 Víkingurinn 2026 - Umsókn um íþróttastyrk2602198