Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 411

5. mars 2026, kl. 16:00 til 16:43, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 932

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:18:40

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 326021710:19:08
    2. 1.2 Efnahagur Fjarðabyggðar26021720:19:36
    3. 1.3 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 202626020580:20:04
    4. 1.4 Reglur um menningarstyrki26020640:31:44
    5. 1.5 Vallavinnusamningur 20262601098
    6. 1.6 Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar26020990:20:32
    7. 1.7 Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður26021760:21:28
    8. 1.8 Sveitarstjórnarkosningar 20262602135
    9. 1.9 Öruggara Austurland - samstarf og samvinna.26020930:22:24
    10. 1.10 Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana2602156
    11. 1.11 Erindi Krabbemeinsfélags Austfjarða um styrk til afnota af Skrúð2602182
    12. 1.12 Fab Lab Ársskýrsla 202526021620:35:00
    13. 1.13 Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 20262602129
    14. 1.14 Fjölskyldunefnd - 512602010F
    15. 1.15 Hafnarstjórn - 3342602013F
    16. 1.16 Stjórn menningarstofu - 322602012F
  2. 2. Bæjarráð - 933

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:23:48

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 2. mars staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Rekstur málaflokka 202626022530:23:48
    2. 2.2 Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði2602154
    3. 2.3 Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati26022010:24:44
    4. 2.4 Fundarboð á hluthafafund2602222
    5. 2.5 Fundargerðir Austurbrúar og SSA 20262602238
    6. 2.6 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20262601212
    7. 2.7 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 522602021F
    8. 2.8 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 532602024F
  3. 3. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 52

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:43:24

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 25. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Breyting á aðalskipulagi reitur AT-30125100900:43:52
    2. 3.2 Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður2509106
    3. 3.3 Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði2401199
    4. 3.4 Byggingarleyfi Hamarsgata 152602185
    5. 3.5 Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar2601172
    6. 3.6 Hreindýraarður - Stöðvarfirði2601254
    7. 3.7 Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði2602154
    8. 3.8 Framkvæmdaleyfi mön við tjaldsvæði Reyðarfirði26021210:45:44
    9. 3.9 Framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi2601202
    10. 3.10 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar2107078
    11. 3.11 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    12. 3.12 Merking á íþróttahús2602142
    13. 3.13 Lóð frystihús Breiðdalsvík brunnar og frágangur2602124
    14. 3.14 Hvíldarbekk með áletruðum skildi2602101
    15. 3.15 Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður2602176
    16. 3.16 Snómokstur Fjarðabyggðar 20262602197
    17. 3.17 Kynding sundlaugar í Neskaupstað2602196
    18. 3.18 Fjárfestingar framkvæmdasviðs 20262602194
    19. 3.19 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 20262602149
  4. 4. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 53

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:46:40

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Viðhald og nýframkvæmdir gatna 202626012390:46:40
    2. 4.2 Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 62602237
    3. 4.3 Kynding sundlaugar í Neskaupstað2602196
    4. 4.4 Fjárfestingar framkvæmdasviðs 20262602194
    5. 4.5 Hvíldarbekk með áletruðum skildi.2602101
    6. 4.6 Snjómokstur Fjarðabyggðar 20262602197
    7. 4.7 Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður2602176
  5. 5. Fjölskyldunefnd - 51

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:47:36

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 20272602108
    2. 5.2 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 20262602058
    3. 5.3 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    4. 5.4 Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - merki2602098
    5. 5.5 Þróun mála barnaverndar og samþættrar þjónustu árin 2023-20262602097
    6. 5.6 Vallavinnusamningur 20262601098
    7. 5.7 Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar2602099
  6. 6. Hafnarstjórn - 334

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss2602048
    2. 6.2 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn2510179
    3. 6.3 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    4. 6.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    5. 6.5 Sjóvarnir á Breiðdalsvík2601162
    6. 6.6 Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar2502061
    7. 6.7 Öryggismál hafna2206100
    8. 6.8 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
    9. 6.9 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga2602047
    10. 6.10 Beiðni um umsögn v. endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers2602013
    11. 6.11 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20262601118
  7. 7. Stjórn menningarstofu - 32

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:48:04

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð25080670:49:28
    2. 7.2 Reglur um menningarstyrki26020640:48:32
  8. 8. Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 3

    Mál 2602171 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:50:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 3 við fjárhagsáætlun ársins 2025.

    Viðaukinn felur í sér breytingar vegna veikindalauna, óráðstafaðra útgjalda og útgjalda sem tengjast endurbótum á mannvirkjum og endurnýjun tölvubúnaðar.

    a)

    Úthlutun fjármagns vegna veikindalauna til deilda í a- hluta að fjárhæð 77,6 m.kr. af sameiginlegum kostnaði, fjárliður 21690.

    b)

    Hækkun fjárveitinga til fræðslumála vegna endurnýjunar tölvubúnaðar að fjárhæð 3,8 m.kr.

    c)

    Hækkun fjárveitinga til íþróttamála vegna viðgerða á toppmastri skíðasvæðis að fjárhæð 12,5 m.kr.

    d)

    Úthlutun fjármagns vegna tilfallandi ófyrirséðs kostnaðar til deila í a- hluta að fjárhæð 5,8 m.kr. af sameiginlegum kostnaði, fjárliður 21690

    Breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2025 eru að rekstrarniðurstaða a- hluta versnar um 16,3 m.kr. og verður jákvæð um 199,5 m.kr. eða 612,1 m.kr. í samstæðu. Sjóðsstaða samstæðunnar í heild í árslok 2025 lækkar um 16,3 m.kr. og verður 142 m.kr.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka 3 við fjárhagsáætlun ársins 2025.

  9. 9. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026

    Mál 2602058 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:52:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

    Enginn tók til máls

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um sérstakan húsnæðissstuðning.

  10. 10. Reglur um menningarstyrki

    Mál 2602064 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:53:40

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að endurskoðuðum reglum um úthlutun menningarstyrkja.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um úthlutun menningarstyrkja.

  11. 11. Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar

    Mál 2601172 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:54:08

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir auglýsingu deiliskipulagsbreytingar.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu Bakkar 3, vegna breytinga á lóðinni Sólbakki 1.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu Bakkar 3.

  12. 12. Breyting á aðalskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður

    Mál 2509106 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:54:36

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir aðalskipulagsbreytingu.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna íbúðabyggðar við Búðareyri 12, Reyðarfirði. Umsagnir bárust frá HAUST og Vegagerðinni sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir og er tillagan lögð fram óbreytt.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040 vegna Búðareyri 12.

  13. 13. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði

    Mál 2401199 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:55:04

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir aðalskipulagsbreytingu.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna tjaldsvæðis og íbúðabyggðar á Eskifirði. Nokkrar umsagnir bárust við auglýsingu breytinganna sem fólu ekki í sér efnislegar athugasemdir og er tillagan lögð fram óbreytt.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 til 2040, tjaldsvæði og íbúðabyggð á Eskifirði.

  14. 14. Sveitarstjórnarkosningar 2026

    Mál 2602135 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:55:32

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu yfirkjörstjórnar.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnunartímum þeirra vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Lagt er til að kjörstaðir og talningastaður í Fjarðabyggð verði:

    Sólbrekka í Mjóafirði.

    Nesskóli í Neskaupstað.

    Eskifjarðarkirkja á Eskifirði.

    Safnaðarheimilið á Reyðarfirði.

    Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði.

    Grunnskólinn á Stöðvarfirði.

    Grunnskólinn á Breiðdalsvík.

    Talningarstaður í Eskifjarðarkirkju.

    Kjörstaðir verði opnir frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði til kl. 14:00.

    Enginn tók til máls

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk.