Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 334

16. febrúar 2026, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 932 liður 15

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar.

  • Bæjarstjórn, fundur 411 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss

    Mál 2602048 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskip dags. 2. febrúar þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Heimi Karlsson, skipstjóra á Dettifossi. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  2. 2. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn

    Mál 2510179 Allur ferill málsins

    Lagt fyrir að nýju. Unnið er að útboðsgögnum fyrir dýpkun. Hafnarstjórn samþykkir forsendur gagna og val á útboðsleið. Stjórnanda og hafnarstjóra falinn frágangur og leggja fyrir gögn í endanlegri mynd.

  3. 3. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2501155 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á landmótun og landfyllingu á Mjóeyrarhöfn.

  4. 4. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur að malbika þarf Leirubakka á Eskifirði til að ljúka frágangi hafnarsvæðisins á landi. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í útboð á malbikun Leirubakka.

  5. 5. Sjóvarnir á Breiðdalsvík

    Mál 2601162 Allur ferill málsins

    Málið lagt fyrir að nýju. Stjórnandi og fulltrúi Vegagerðarinnar hafa skoðað aðstæður við Selnes 3-5 með tilliti til sjóvarna. Hafnarstjórn samþykkir að fara í sjóvarnir til bráðabirgða í samstarfi við Vegagerðina.

  6. 6. Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar

    Mál 2502061 Allur ferill málsins

    Lögð fram skýrsla Vegagerðarinnar um ástand ferjubryggjunnar í Mjóafirði. Stjórnanda hafna falið að vinna málið áfram og kalla eftir frekari gögnum, horft er til þess að farið verði í lagfæringar.

  7. 7. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna

  8. 8. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2507014 Allur ferill málsins

    Um umsögn Vegagerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í ábendingu Vegagerðarinnar og vísar erindinu til umsagnar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur stjórnanda hafna að svara skipulags- og framkvæmdanefnd.

  9. 9. Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga

    Mál 2602047 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megin regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar.

  10. 10. Beiðni um umsögn v. endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers

    Mál 2602013 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.

  11. 11. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

    Mál 2601118 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands