Hafnarstjórn, fundur 333
26. janúar 2026, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 929 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 409 liður 7
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 333 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 333 er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 4
Mál 2512112 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun lóðar Hraun 4, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkti fyrir sitt leyti stækkun á lóð með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísaði erindinu til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir stækkun lóðar að Hrauni 4 og vísar málinu til afgreiðslu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa.
-
2. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Mál 2510179 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að útboðsgögnum fyrir dýpkun við Frystihússbryggju á Eskifirði. Stjórnanda og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
-
3. Sjóvarnir á Breiðdalsvík
Mál 2601162 Allur ferill málsins
Skoða þarf sjóvarnir við Selnes 3-5 á Breiðdalsvík. Haft hefur verið samband við Vegagerðina sem ber ábyrgð á að verja mannvirki fyrir ágangi sjávar. Stjórnanda hafna og hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni og leggja fyrir að nýju. Jafnframt er hafnarstjóra falið að vera í sambandi við lóðarhafa um málið.
-
4. Þróun Mjóeyrarhafnar
Mál 2601175 Allur ferill málsins
Farið yfir þróun Mjóeyrarhafnar. Trúnaðarmál.
-
5. Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Mál 2501155 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna á landmótun og landfyllingu á Mjóeyrarhöfn.
-
6. Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar
Mál 2502061 Allur ferill málsins
Farið að nýju yfir málin varðandi hafnarsvæðið í Mjóafirði. Stjórnanda hafna og hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir gagnvart Vegagerðinni og leggja fyrir að nýju.
-
7. Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Eskifjarðarhöfn
Mál 2512092 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
-
8. Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Reyðarfjarðarhöfn
Mál 2512098 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
-
9. Erindi tollgæslu - Aðgangur að rafrænni vöktun á Norðfjarðarhöfn
Mál 2512099 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Skattsins um aðgang tollgæslu að rafrænni vöktun á tollhöfnum, hafnarsvæðum o.fl. Stjórnanda hafna falið að svara erindinu og vinna að útfærslu.
-
10. Framtíðin og íslenskar hafnir
Mál 2601116 Allur ferill málsins
Skýrsla Hafnasambands Íslands um framtíðarstefnu hafna lögð fram til kynningar
-
11. Hafnasambandsþing 2026
Mál 2601124 Allur ferill málsins
Hafnasambandsþing Hafnasambands Íslands verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23.október 2026. Hafnarstjórn samþykkir að þingið verði sótt af fulltrúum Fjarðabyggðarhafna.
-
12. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Mál 2502023 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 476., 477. og 478. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.