Hafnarstjórn, fundur 332
1. desember 2025, kl. 16:00 til 17:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 923 liður 11
Fundargerð hafnarstjórnar frá 1. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 407 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 1. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir
Mál 2511237 Allur ferill málsins
Lögð fram skýrsla frá Portum verkfræðistofu um ástand stálþilsbryggja í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur stjórnanda og sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
2. Úttekt á flotbryggjum - Fjarðabyggðarhafnir
Mál 2511238 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt úr úttektarskýrslum um ástand flotbryggja í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur stjórnanda og sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
3. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað frá COWI varðandi dýpkun við Frystihússbryggjuna á Eskifirði. Hafnarstjórn felur stjórnanda og sviðsstjóra að halda vinnu málsins áfram.
-
4. Aðgangur tollyfirvalda að rafrænu eftirliti hafna
Mál 2511164 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar gögn frá Hafnasambandi Íslands vegna nýlegrar lagabreytingar varðandi rafrænt eftirlit í höfnum og aðgang að því. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
-
5. Viðhald og framkvæmdir í Safnahúsi Neskaupstað 2025-26
Mál 2510089 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað verkefnastjóra safna um nauðsynlegt viðhald á Safnahúsinu í Neskaupstað, en húsið er í eigu Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn felur stjórnanda og sviðsstjóra að fara yfir og skoða hvað falli undir almennt viðhald og hvað falli undir fjárfestingaáætlun.
-
6. Cruise Europe ráðstefnan 2026
Mál 2506128 Allur ferill málsins
Lagðar fram og kynntar upplýsingar um ráðstefnu Cruise Europe sem haldin verður í Reykjavík í maí 27.-29.maí 2026.
-
7. Fréttabréf Cruise Iceland 2025
Mál 2511123 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar fréttabréf Cruise Iceland
-
8. Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa
Mál 2409069 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað frá LEX lögfræðistofu sem Hafnasamband Íslands lét vinna um tollfrelsi erlendra skemmtiferðaskipa.
-
9. Umsögn vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis
Mál 2511080 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn vegna umsóknar Ingva Rafns Guðmundssonar um endurnýjun hafnsögumannsskírteinis í Fjarðabyggðarhöfnum.