Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 331

6. október 2025, kl. 16:30 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 915 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 404 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026

    Mál 2505143 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Hafnarstjóra og stjórnanda falið að vinna áfram að fjárhagsáætlun á grundvelli gagna sem lögð voru fram.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2026

    Mál 2508188 Allur ferill málsins

    Drög að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2026 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög að gjaldskrá með breytingum eftir umræður á fundinum.

  3. 3. Umsókn um styrki til menningarmála hljómsveitin Rown

    Mál 2509147 Allur ferill málsins

    Ósk um styrk frá Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn þakkar erindið en vísar því til afgreiðslu Menningarstofu.

  4. 4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

    Mál 2502023 Allur ferill málsins

    Fundargerð 475. fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.