Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 330

22. september 2025, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 913 liður 25

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. september lögð fram til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 6

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026

    Mál 2505143 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2026. Hafnarstjóra og stjórnanda hafna falið að vinna áfram í fjárhagsáætlun. Tekið fyrir á næsta fundi.

    Jafnframt leggja formaður og varaformaður hafnarstjórnar Fjarðabyggðar til við hafnarstjórn, í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026, að Menningarstofu Fjarðabyggðar verði falið umhald þeirra styrkja sem hafnarstjórn hefur komið að hvað varðar menningarviðburði í heimabyggð í gegnum tíðina og fái til þess fjármagn frá hafnarsjóði árlega. Er stjórn Menningarstofu falið að útfæra þá styrki innan sinna úthlutunar til menningarmála en hafnarstjórn leggur áherslu á að þær hátíðir og viðburðir sem hún hefur styrkt njóti styrkja áfram. Jafnframt felur hafnarstjórn hafnarstjóra að ganga frá og halda utan um styrki til Sjávarútvegsskólans í framtíðinni í samræmi við fyrri samþykktir hafnarstjórnar vegna hans starfsemi.

    Tekur þetta fyrirkomulag gildi á árinu 2026 og mun hafnarstjórn frá því ekki taka fyrir styrkumsóknir er varða þessa málaflokka og skal þeim vísað til Menningarstofu Fjarðabyggðar. Jafnframt mun Menningarstofa og stjórn hennar skila skýrslu til hafnarstjórnar ár hvert um styrkúthlutanir sínar.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2026

    Mál 2508188 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2026 og drög að umgengnisreglum fyrir gámasvæði og uppsátur lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir umgegnisreglurnar fyrir sitt leyti og felur stjórnanda hafna að kynna þær samhliða frágangi gjaldskrár fyrir 2026. Jafnframt er horft til þess að gjaldtaka fyrir uppsátrin hefjist í janúar 2027.

  3. 3. Fjárfestingar hafna á Íslandi 2025-2040

    Mál 2509123 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar greining sem unnin hefur verið fyrir Hafnasamband Íslands og fjallar um fjárfestingar og framtíðaráætlanir hafna á Íslandi.

  4. 4. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss

    Mál 2509145 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss Eskju.

  5. 5. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining

    Mál 2505124 Allur ferill málsins

    Fyrstu tveimur áföngum í greiningu Mjóeyrarhafnar er lokið. Majid Eskafi, hafnarverkfræðingur hjá EFLU, kom á fundinn og kynnir niðurstöður á greiningu hagsmunaaðila og afkastagetu fyrir núverandi notendur Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir að unnið verði að þriðja og fjórða áfanga greiningar á Mjóeyrarhöfn og felur hafnarstjóra að semja við EFLU. Hafnarstjórn samþykkir að þar til niðurstaða greiningar liggur fyrir og heildarstefna fyrir svæðið hefur verið mótuð mun úthlutun lóða á Mjóeyrarhafnarsvæðinu ekki fara fram en hvetur áhugasama til samtals.