Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 329

8. september 2025, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 911 liður 10

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. september tekin til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 402 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundgerð hafnarstjórnar frá 8. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026

    Mál 2505143 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2026. Starfsmönnum falið að vinna áfram að starfs- og fjárhagsáætlun 2026 og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn vegna valkosta við dýpkun. Til umfjöllunar í vinnu við starfs-og fjárhagsáætlun 2026 og undirbúning næstu skrefa í haust. Beðið er niðurstöðu EFLU vegna efnismagns og málið tekið fyrir þegar sú niðurstaða liggur fyrir.

  3. 3. Hafnarvog Reyðarfirði

    Mál 2503065 Allur ferill málsins

    Lagðar fram upplýsingar um afhendingartíma í tengslum við kaup á bílavogum. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að panta tvær bílavogir og setja upp.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Sigyn W

    Mál 2509015 Allur ferill málsins

    Erindi frá Torcargo ehf. dags. 1. september þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Viktor Tsurlia, skipstjóra á Mv Sigyn W. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  5. 5. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju

    Mál 2508075 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar.

  6. 6. Beiðni um styrk - Ný Hafbjörg 2027

    Mál 2503068 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju erindi frá Björgunarbátasjóði SVFÍ Neskaupstað þar sem óskað er eftir styrk vegna endurnýjunar á björgunarskipinu Hafbjörgu. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Björgunarbátasjóð SVFÍ Neskaupstað um fimm milljónir á ári í þrjú ár, samtals 15 milljónir. Áætlað er að nýtt björgunarskip komi árið 2027 og miðað er að því að greiðslu styrkja verði lokið við komu skipsins.

  7. 7. Umsókn um styrk til menningarverkefna 2025

    Mál 2508171 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Menningarstofu Fjarðabyggðar um styrk til fjögurra menningarverkefna á árinu 2025. Hafnarstjórn samþykkir umbeðinn styrk og felur jafnframt formanni og varaformanni hafnarstjórnar að móta tillögu um styrkjafyrirkomulag næsta árs og leggja fyrir hafnarstjórn á næsta fundi.

  8. 8. Yfirferð og uppsetning fræðsluskilta

    Mál 2506083 Allur ferill málsins

    Vísað frá stjórn menningarstofu til hafnarstjórnar tillögu verkefnastjóra safna um sögu og myndaskilti í Neskaupstað, uppsetningu þeirra og beiðni um stuðning. Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur stjórnanda Fjarðabyggðarhafna og verkefnastjóra safna að vinna málið saman.

  9. 9. Sjávarútvegsráðstefnan 2025

    Mál 2508198 Allur ferill málsins

    Sjávarútvegsráðstefnan 2025 verður haldin í Hörpu dagana 6.-7.nóvember næstkomandi. Formaður mun sækja ráðstefnuna.

  10. 10. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

    Mál 2502023 Allur ferill málsins

    Fundargerð 474. fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar