Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 328

11. ágúst 2025, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 907 liður 7

    Fundur hafnarstjórnar frá 11. ágúst lagður fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 400 liður 2

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 11. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Leirubakki - Gatnagerð og veitulagnir

    Mál 2506180 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda við gatnagerð og veitulagnir á Leirubakka, Eskifirði.

  2. 2. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Yfirferð og umræða um stöðu mála á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna.

  3. 3. Slipptaka Vattar 2025

    Mál 2504188 Allur ferill málsins

    Dráttarbáturinn Vöttur fór í slipp á Akureyri í byrjun sumars. Farið yfir það sem framkvæmt var og stöðuna á viðhaldi bátsins.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica

    Mál 2508013 Allur ferill málsins

    Erindi frá Gáru fyrir hönd Royal Arctic Line dags. 24. júlí 2025 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Rasmus Bundgaard Hansen, skipstjóra á Tukuma Arctica. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.

  5. 5. Beiðni um styrk vegna sjómanndagsins í Neskaupstað

    Mál 2507072 Allur ferill málsins

    Ósk Sjómannadagsráðs Neskaupstaðar um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadeginum 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.

  6. 6. Umsókn um styrk vegna Neistaflugs 2025

    Mál 2506113 Allur ferill málsins

    Umsókn um styrk vegna Neistaflugs 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.

  7. 7. Styrkumsókn - Útsæði 2025

    Mál 2506131 Allur ferill málsins

    Lögð fram styrkumsókn frá Útsæði - bæjarhátíð á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.

  8. 8. Breyting á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla

    Mál 2506087 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar reglugerð um breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla.

  9. 9. Lagarlíf 2025

    Mál 2508030 Allur ferill málsins

    Ráðstefnan Lagarlíf verður haldin í Hörpu dagana 30.september og 1.október næstkomandi. Hafnarstjórn samþykkir að fulltrúi Fjarðabyggðarhafna sæki ráðstefnuna.

  10. 10. Cruise Iceland samantekt á tvíblöðungi

    Mál 2506124 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantekt frá Cruise Iceland.

  11. 11. Cruise Europe ráðstefnan 2026

    Mál 2506128 Allur ferill málsins

    Árleg ráðstefna Cruise Europe verður haldin í Reykjavík 27.-29 maí 2026.

  12. 12. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025

    Mál 2502023 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 473. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands ásamt samþykkt stjórnar Hafnasambandsins varðandi strandsiglingar.