Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 327

10. júní 2025, kl. 16:00 til 17:38, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 899 liður 6

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 10.júní.

  • Bæjarstjórn, fundur 399 liður 4

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu. Jón Björn Hákonarson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 og var hann borinn upp sérstaklega.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júní utan liðar 9, er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar

    Mál 2502033 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað EFLU verkfræðistofu vegna fyrirhugaðra breytinga á löndunarhúsi og löndunarbúnaði Loðnuvinnslunnar við Strandarbryggju og Innri löndunarbryggju á Fáskrúðsfirði.

    Hafnarstjórn tekur vel í erindi Loðnuvinnslunnar og vísar fjármögnun framkvæmdarinnar til fjárhagsáætlunar ársins 2026.

  2. 2. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Yfirferð og umræða um stöðu mála á úrbótum í öryggismálum Fjarðabyggðarhafna og aðgengismál þeirra og takmörkun umferðar um athafnasvæði. Jafnframt rætt um, merkingar og búnað á og við bryggjur.

    Hafnarstjórn lýsir mikilli ánægju sinni með árangur í úrbótum á öryggismálum hafnanna þó verkefninu sé ekki lokið.

  3. 3. Tiltekt og fegrun umráðasvæða hafna

    Mál 2503122 Allur ferill málsins

    Fjallað um tiltekt og fegrun umráðasvæða hafnanna samhliða átakinu vor í Fjarðabyggð.

    Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með framgang í úrbótum á umhverfi hafnanna og hvetur til áframhaldandi fegrunar og bætingar á ásýnd hafnanna.

  4. 4. Berunes kaup eignarhluta

    Mál 2506008 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til hafnarstjórnar kauptilboði í 5,5556% hluta jarðarinnar Berunes í Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn samþykkir kauptilboðið og felur hafnarstjóra að undirrita samninga og skjöl sem tengist kaupunum með fyrirvara um nýtingu kaupréttar eigenda.

  5. 5. Umsókn um lóð Hraun 12

    Mál 2505117 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarlóð að Hrauni 12, Móeyrarhöfn, Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að eiga viðræður við umsækjendur og afla frekari upplýsinga.

  6. 6. Aðalfundur Cruise Iceland 2025

    Mál 2503239 Allur ferill málsins

    Lögð fram fundargerð og gögn frá aðalfundi Cruise Iceland sem haldinn var 30.apríl síðastliðinn.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026

    Mál 2505143 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2025 fyrir hafnarstjórn.

    Hafnarstjórn gerir ekki ráð fyrir breytingum á forsendum fjárhagsáætlunar frá því sem er fyrir árið 2025.

  8. 8. Samgönguáætlun 2026-2030 endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir

    Mál 2505039 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Vegagerðinni um endurskoðun samgönguáætlunar 2006-2030 en hægt er að sækja um styrki til frumrannsókna og sjávarvarna.

    Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að fara yfir þörf á endurbótum sjóvarna og ganga frá umsókn til Vegagerðarinnar þar um.

  9. 9. Uppsetning á flotbryggjum við Suðurbæi í Norðfirði

    Mál 2506055 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Framlagt erindi Hildibrands ehf. þar sem óskað er eftir stuðningi við uppsetningu og frágang flotbryggjufestingar við Suðurbæina á Barðsnesi til að auka og bæta aðgengi almennings að Gerpissvæðinu.

    Hafnarstjórn tekur vel í erindið fyrir sitt leyti með vísan til reglna um styrki til viðhalds og endgerðar á bryggjum og felur stjórnanda hafna að vera í samskiptum við bréfritara.