Hafnarstjórn, fundur 326
13. maí 2025, kl. 12:00 til 12:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 895 liður 14
Fundargerð hafnarstjórar frá 13. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 397 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar hafnarstjórnar frá 13. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
Mál 2504199 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar samþykktri tillögu að skipulagi við vinnu fjárhagsáætlunar 2026 ásamt dagsetningum í ferlinu.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lagðar fram til afgreiðslu niðurstöður útboðs í framkvæmdina Leirubakki gatnagerð og veitulagnir. Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við læstbjóðanda og felur stjórnanda Fjarðabyggðarhafna og hafnarstjóra að annast frágang og undirritun samnings.
-
3. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Mál 2502033 Allur ferill málsins
Lagðar fram til afgreiðslu tillögur Loðnuvinnslunnar að færslu mjöldragara fyrirtækisins. Hafnarstjórn samþykkir færslu mjöldragara og mjölkrana á Ytri löndunarbryggju að því gefnu að tryggt verði að undirstöður verði sjálfstæðar og tengist ekki burðarvirki bryggjunnar. Framkvæmdaraðili skal tryggja öryggi vinnusvæðis á meðan á framkvæmdum stendur og frágang bryggju að verki loknu.
-
4. Yfirlýsing vegna kaupréttar
Mál 2209031 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til samþykktar. Lögð fram gögn varðandi kaup Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á fasteigninni að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði, fasteignanúmer F2177464. Bæjarráð samþykkti kaupin fyrir sitt leyti á 894. fundi. Hafnarstjórn samþykkir kaupin fyrir sitt leyti og felur hafnarstjóra frágang þeirra og yfirferð fjármögnunar.
-
5. Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2025
Mál 2505023 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar vegna dagskrár Sjómannadagsins á Eskifirði 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.
-
6. Umsókn um styrk til Stöð í Stöð 2025
Mál 2503086 Allur ferill málsins
Umsókn um styrk fyrir bæjarhátíðina Stöð í Stöð 2025. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.
-
7. Hafnafundur 2025
Mál 2504219 Allur ferill málsins
Hafnasamband Íslands hefur boðað til 12. hafnafundar sem haldinn verður á Ólafsvík 23. október n.k. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.
-
8. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2024
Mál 2505029 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög ársreiknings Hafnasambands Íslands 2024. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við drögin.
-
9. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Mál 2502023 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 472. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.